Nútímalegt einbýlishús með lokuðum bílskúr, þakverönd og einkasundlaug í Lo Pagán

Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan

Þessi eign er ekki í boði


3

3

133.80 m2

194.00 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 3530886

Einbýlishús í Lo Pagan, íbúðahverfi í San Pedro, aðeins 650 metra frá hinni frábæru Mar Menor strönd. Húsin eru í göngufæri frá miðbænum, með fjölmörgum matvöruverslunum, verslunum, börum og veitingastöðum. Svæðið býður einnig upp á úrval tómstunda og útivistar, eins og hin frægu leðjuböð og vatnaíþróttir við strendurnar, í aðeins 8 mínútna göngufjarlægð. Þá má finna ýmsa golfvelli í innan við 10 mínútna akstursfjarlægð.

Tveggja hæða einbýlishús, með 3 svefnherbergjum, 3 baðherbergjum og þakverönd. Aðalhæðin samanstendur af stofu og borðkrók og opnast út á rúmgóða verönd og sundlaugarsvæði. Eldhúsið nær frá borðstofunni og opnast út í gallerí og bílskúrinn. Hjónaherbergi má einnig finna á aðalhæðinni. Tvö en-suite svefnherbergi eru á efri hæð, bæði með aðgangi að stórri verönd. Þaðan liggur stigi uppá þakveröndina, þar sem hægt er að njóta ótrúlegs útsýnis. Í húsunum er lokaður bílskúr sem hægt er að breyta í viðbótarherbergi.

Húsin eru gott fjárfestingartækifæri með gæðafrágangi og þeim fylgir loftkæling, eldhústæki, gólfhiti á baðherbergjum, innbyggðir fataskápar, LED lýsing, innandyra og úti, sumareldhús í bílskúrnum , einkasundlaug með foruppsetningu fyrir varmadælu og bílastæði á lóð.
See more...

  • einkasundlaug
  • verönd
  • eigin garður
  • afgirt bílastæði
  • þakverönd
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan

San Pedro del Pinatar hefur fram að færa 14 km af ströndum sem skiptast milli tveggja hafa; Mar Menor og Miðjarðarhafsins. Sérstök staðsetning bæjarins við ströndina og náttúrulegt umhverfi á svæðinu hafa ýtt undir vinsældir hans og aukið eftirspurn eftir húsnæði.

Auk fallegra stranda, hafnarinnar og góðu framboði þjónustu hefur San Pedro del Pinatar fram að færa einstaka náttúruperlu; þjóðgarðinn Las Salinas y Arenales de San Pedro del Pinatar en garðurinn er votlendi með fjölbreyttu fuglalífi og fallegri plöntuflóru. Bærinn San Pedro del Pinatar, auk sjálfs kjarna bæjarins, er byggður upp af öðrum litlum úthverfum eins og El Mojón, Las Salinas, Los Sáez og Lo Pagán. Hið síðasttalda, Lo Pagán, er hið mikilvægasta vegna mikillar þróunar hvað varðar ferðamennsku. Mikilvægasta ströndin í Lo Pagán er playa de La Puntica, en þar eru falleg lítil hús og spa svæði sem teygir sig út í hafið, auk góðs framboðs af dægradvöl.

  • 41 km
  • 10 km
  • 29 km
  • 1 km
  • 17 km
  • 14 km

Nánari upplýsingar um San Pedro - Lo Pagan

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.