Íbúðir á jarðhæð með rúmgóðri verönd í San Pedro del Pinatar

Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan

frá 36,759,490 kr
frá 244.900€

2

2

73.81 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4937588

Nýr íbúðakjarni í San Pedro del Pinatar á Costa Cálida. Öll nauðsynleg þjónusta er í nálægð við kjarnann, sum hver í göngufjarlægð. Golfvellir og ýmis tækifæri til íþróttaiðkunar er einnig nálægt. Höfnin í Lo Pagan er í um 1 km fjarlægð frá kjarnanum, við hlið Villa Nanitos strandanna, La Puntica og Sanitago de la Ribera. Kjarninn er í um 3 km fjarlægð frá Las Salinas de San Pedro náttúrugarðinum sem er kjörinn fyrir göngur og hjólaferðir. Kjarninn er einnig vel tengdur vegakerfinu og auðvelt að fara til Murcia, Cartagena og Alicante. Flugvöllurinn í Murcia er í um 35 mínútna fjarlægð og flugvöllurinn í Alicante er í um klukkustundarfjarlægð. Kjörin staðsetning fyrir heimili jafnt sem orlofshús.

Þessi litli kjarni býður upp á íbúðir sem eru með 2 eða 3 svefnherbergi, og 2 baðherbergi, sem eru fáanlegar í tveimur útgáfum; jarðhæðir með stórri verönd og þakíbúðir með þakverönd. Allar íbúðir eru með stofuna, borðstofuna og eldhúsið í opnu rými sem opnast út á verönd og hjónaherbergin eru með baðherbergi inn af.

Íbúðunum fylgja fullbúin eldhús, loftkæling sem bæði hitar og kælir, gólfhiti á baðherbergjum, rafknúnar gardínur, LED inni- og útlýsing og bílastæði. Þakíbúðunum fylgja pergola og útieldhús á þakinu.

Sameiginleg sundlaug er í garðinum og sólbekkir.

See more...

  • verönd
  • bílastæði
  • sameiginleg sundlaug
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan

San Pedro del Pinatar hefur fram að færa 14 km af ströndum sem skiptast milli tveggja hafa; Mar Menor og Miðjarðarhafsins. Sérstök staðsetning bæjarins við ströndina og náttúrulegt umhverfi á svæðinu hafa ýtt undir vinsældir hans og aukið eftirspurn eftir húsnæði.

Auk fallegra stranda, hafnarinnar og góðu framboði þjónustu hefur San Pedro del Pinatar fram að færa einstaka náttúruperlu; þjóðgarðinn Las Salinas y Arenales de San Pedro del Pinatar en garðurinn er votlendi með fjölbreyttu fuglalífi og fallegri plöntuflóru. Bærinn San Pedro del Pinatar, auk sjálfs kjarna bæjarins, er byggður upp af öðrum litlum úthverfum eins og El Mojón, Las Salinas, Los Sáez og Lo Pagán. Hið síðasttalda, Lo Pagán, er hið mikilvægasta vegna mikillar þróunar hvað varðar ferðamennsku. Mikilvægasta ströndin í Lo Pagán er playa de La Puntica, en þar eru falleg lítil hús og spa svæði sem teygir sig út í hafið, auk góðs framboðs af dægradvöl.

  • 41 km
  • 10 km
  • 29 km
  • 1 km
  • 17 km
  • 14 km

Nánari upplýsingar um San Pedro - Lo Pagan

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.