Raðhús með 3 svefnherbergjum, bílskúr, veröndum og útsýni til hafs í Costa de Mijas, nálægt Fuengirola

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Fuengirola

Þessi eign er ekki í boði


3

3

135.46 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 3967131

Einstakur íbúðakjarni, sem samanstendur af rúmgóðum og björtum raðhúsum, á upphækkuðu svæði í Mijas Costa, í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð frá Fuengirola og ströndum Mijas. Nútímaleg og nýstárleg hönnun með stórum gluggum til að njóta ótrúlegs sjávarútsýnis og útsýnis til Sierra de Mijas fjallanna. Rólegt og aðgengilegt svæði, tengt allri ströndinni, og með lest frá Fuengirola til Málaga. Aðeins fimm mínútur frá verslanamiðstöðvum, hótelum og golfvöllum og fjölbreyttum veitingastöðum meðfram ströndinni. Inní landi á Mijas svæðinu eru týpísk þorp Andalúsíu með hvítu húsunum sínum og Málaga flugvöllur er í aðeins 18 mínútna akstursfjarlægð.

Raðhús með 3 svefnherbergjum, stórum veröndum og görðum en velja má um raðhús á 2 hæðum eða raðhús á 3 hæðum með bílskúr eða möguleika á að breyta kjallara í aukaíbúð. Allar eignir bjóða upp á rúmgóða stofu með opnu og fullbúnu eldhúsi með eldhústækjum. Eignirnar eru byggðar með hágæða efnum og þeim fylgir loftkæling, gólfhiti á baðherbergjum og snjallkerfi.

Sameiginlegt svæði hefur sundlaugar, lítinn nuddpott, svæði með pergólum og grilli og afslöppunarsvæði. Í bónus, og gildir í eitt ár, er Platinum áskrift að þjónustu í Íþróttaklúbbnum og heilsulindinni.

Garðsvæðin skara framúr í þessum kjarna með því að bjóða upp á náttúrulega ræktaða ávexti og ilmandi jurtir sem hver og einn getur notið góðs af.

Það fer eftir tegund eignar hvort innifalið er bílastæði eða lokaður bílskúr með plássi fyrir allt að tvo bíla.

See more...

  • verönd
  • eigin garður
  • bílastæði
  • sameiginleg sundlaug
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Fuengirola

Fuengirola er borg sem angar af Andalúsíu og býður uppá víðfeðma strandlengju sem skreytt er stórkostlegum ströndum. Þessi borg í Málaga héraði hefur um langt skeið verið eftirsóttur ferðamannastaður og býður uppá fjölbreytt úrval þjónustu og innviða, svo sem golfvelli, hestabúgarða, skemmtigarða, hótel og veitingastaði, svo ekki sé minnst á menningarhefðir og hátíðir. Menningarlegir viðburðir í Fuengirola, ásamt vinsælum hátíðahöldum, teygja sig yfir árið eins og það leggur sig og endurspegla opið og alúðlegt viðmót innfæddra.  

Íbúafjöldi í borginni er um 80.000 manns, sem gerir hana að fimmta fjölmennasta sveitarfélagi Málaga, á eftir höfuðborginni sjálfri, Marbella, Vélez-Málaga og Mijas.

Fuengirola var stofnuð af Föníkumönnum og um hana fóru Rómverjar, Býsantíumenn, Vestgotar og Múslímar ásamt öðrum þjóðum, þar til hún var opinberlega innlimuð í konungsríki Kastilíu, árið 1485. Í dag er Fuengirola mikilvægur ferðamannastaður sem hýsir um 250.000 manns yfir sumartímann og hagkerfi borgarinnar veltur á ferðamannaþjónustu. 

  • 19 km
  • 6 km
  • 5 km
  • 3 km
  • 4 km
  • 5 km

Nánari upplýsingar um Fuengirola

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.