Lúxuseinbýli með fimm svefnherbergjum og útsýni yfir hafið í Fuengirola

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Fuengirola

frá 442,795,000 kr
frá 2.950.000€

5

5

825.75 m2

1164.00 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4706076

Lúxuseignir með stórkostlegu útsýni yfir hafið, á upphækkuðu svæði í Mijas Costa, 10 mínútur frá Fuengirola og einungis 5 mínútur frá ströndinni. Eignirnar tilheyra afgirtum dvalarstað með aðgangi að fyrsta flokks þjónustu og aðstöðu, eins og dyravörslu, íþróttaklúbbi, afslöppun í spa eða á strandarklúbbnum. Í Mijas Costa er að finna úrval veitingastaða, við ströndina sjálfa og einnig inn í miðbænum, en þetta er dæmigert þorp sem býr enn yfir töfrum hvítu þorpanna í Andalúsíu. Staðsetningin er fullkomin fyrir golfunnendur, en einnig annarra íþrótta, úrval hasaríþrótta er á staðnum eins og svifflug, en einnig allskonar vatnaíþróttir. Húsin eru á rólegum stað, auðvelt er að komast að þeim því þau er vel tengd hraðbrautinni svo hægt er að komast hratt og örugglega til annarra mikilvægra borga eins og Puerto Banús og Marbella á hálftíma og á flugvöllinn í Malaga á einungis 15 mínútum.

Glæsilegar eignir í nútímalegum stíl, með fimm svefnherbergjum og fimm baðherbergjum, á tveimur hæðum og á stórum lóðum.  Einstök hús sem skera sig úr vegna þess hve vel þau falla að náttúrulegu umhverfinu og vegna stórkostlegs útsýnis yfir hafið. Eitt af markmiðum hönnunarinnar er að skapa björt og rúmgóð rými, nýta dagsljósið í öllum herbergjum húsanna til hins ýtrasta og hampa tengingu við náttúru og haf. 

Efri hæðin samanstendur af opnu rými með rúmgóðri stofu-borðstofu í hálfhring og nútímalegu eldhúsi. Í opna rýminu eru gluggar sem ná frá gólfi til lofts og er útgengt um þá þar sem er að finna stórar verandir, dásamlega sundlaug sem virðist liggja að hafinu, og undurfögrum Miðjarðarhafsgarði. Á fyrstu hæð er að finna gestasalerni, stærsta svefnherbergið sem er með stórum fataskáp, sérbaðherbergi og svölum.

Á neðri hæðinni eða í hálfniðurgröfnum kjallaranum eru hin fjögur svefnherbergin, þrjú þeirra með sérbaðherbergi, eitt baðherbergi og aðgangur að garði. Á þessari hæð eru einnig rými sem hægt er að hanna eftir þörfum eiganda, eins og leikja- eða kvikmyndasal, spa, líkamsræktarsal, vínkjallara, eða hvað það sem hugurinn girnist. Húsin eru með bílskúr fyrir tvö ökutæki. 

Einstök hús sem gefa kost á að hanna eftir eigin höfði og uppfylla hvers konar drauma tilvonandi eigenda.

See more...

  • einkasundlaug
  • verönd
  • eigin garður
  • afgirt bílastæði
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Fuengirola

Fuengirola er borg sem angar af Andalúsíu og býður uppá víðfeðma strandlengju sem skreytt er stórkostlegum ströndum. Þessi borg í Málaga héraði hefur um langt skeið verið eftirsóttur ferðamannastaður og býður uppá fjölbreytt úrval þjónustu og innviða, svo sem golfvelli, hestabúgarða, skemmtigarða, hótel og veitingastaði, svo ekki sé minnst á menningarhefðir og hátíðir. Menningarlegir viðburðir í Fuengirola, ásamt vinsælum hátíðahöldum, teygja sig yfir árið eins og það leggur sig og endurspegla opið og alúðlegt viðmót innfæddra.  

Íbúafjöldi í borginni er um 80.000 manns, sem gerir hana að fimmta fjölmennasta sveitarfélagi Málaga, á eftir höfuðborginni sjálfri, Marbella, Vélez-Málaga og Mijas.

Fuengirola var stofnuð af Föníkumönnum og um hana fóru Rómverjar, Býsantíumenn, Vestgotar og Múslímar ásamt öðrum þjóðum, þar til hún var opinberlega innlimuð í konungsríki Kastilíu, árið 1485. Í dag er Fuengirola mikilvægur ferðamannastaður sem hýsir um 250.000 manns yfir sumartímann og hagkerfi borgarinnar veltur á ferðamannaþjónustu. 

  • 18 km
  • 5 km
  • 5 km
  • 1 km
  • 4 km
  • 4 km

Nánari upplýsingar um Fuengirola

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.