Glæsilegt einbýli í fyrstu línu við golfvöll, með sundlaug og kjallara í Mijas Costa

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Mijas, Mijas Costa

frá 127,585,000 kr
frá 850.000€

3

2

362.00 m2

567.00 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4094486

Nútímalegur kjarni einbýlishúsa í fremstu línu við golfvöll í Mijas Costa, svæði sem liggur milli borganna La Cala de Mijas og Fuengirola. Svæðið býður upp á mikið úrval af afþreyingu og þjónustu, svo sem verslanamiðstöðvar, matvöruverslanir, veitingastaði, skóla og heilsugæslustöðvar, að ógleymdum fjölmörgum golfvöllum. Í grundvallaratriðum, allt sem þú þarfnast! Svæðið er í aðeins 25 mínútna akstursfjarlægð frá Málaga alþjóðaflugvellinum og mjög nálægt öðrum mikilvægum ferðamannastöðum, eins og Puerto Banús og sögulegum miðbæ Marbella.

Kjarninn er innan fallegs 70 hektara íbúðasvæðis, með stórkostlegu útsýni yfir Miðjarðarhafið, Mijas fjöllin og golfvöllinn. Eignirnar eru byggðar á um það bil 600m2 lóðum og bjóða upp á stór útirými þar sem njóta má veðurblíðunnar á svæðinu. Húsin eru með kjallara og fást af tveimur gerðum; einbýlishús á einni hæð með þakverönd, eða tveggja hæða einbýlishús með stórri verönd.

Hús á einni hæð hefur 3 svefnherbergi og 3 baðherbergi (tvö en-suite), rúmgóða setustofu, borðkrók og opið eldhús en alrýmið opnast út á verönd frá stofu. Innri stigi liggur uppá stóra þakverönd þar sem hægt er að njóta sólarinnar og stórkostlegs útsýnis. Í kjallara er auka baðherbergi og 3 rými sem nýta má sem vínkjallara eða geymslur, sem dæmi. 

Tveggja hæða húsið er með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, rúmgóðri setustofu, borðkrók og opnu eldhúsi og alrýmið opnast útá verönd frá stofu. En-suite hjónaherbergið er á jarðhæð og 2 svefnherbergi ásamt baðherbergi eru á efri hæð, með aðgangi að stórri verönd. Í kjallara er stórt opið rými með mörgum möguleikum.

Húsin eru byggð með gæðaefnum og þeim fylgir loftkæling, arinn í setustofu, fataskápar, einkasundlaug með útisturtu, landslagshannaður garður og pergóla á bílastæði á lóð.

See more...

  • einkasundlaug
  • verönd
  • eigin garður
  • einkabílastæði
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Mijas, Mijas Costa

La Cala, heitir þéttbýli Mijas sem liggur við ströndina. La Cala er hefðbundið þorp sem í dag er miðpunktur 12 km langrar strandlengju. Við strendurnar eru glæsileg íbúðahverfi, hótel og fjöldinn allur af annars konar þjónustu. Á svæðinu má spila golf og tennis og stunda alls kyns vatnaíþróttir, svo sem köfun eða siglingar. Þá má auðvitað baða sig í sjónum eða liggja og sleikja sólina. 

Úr fortíð svæðisins standa eftir fjórir turnar sem voru hluti af varnarvirki andalúsísku strandlengjunnar. Þá hefur hafsbotninn við Mijas mikla vistfræðilega þýðingu en þar er mikil fjölbreytni í dýralífinu og fjöldi evrópskra, afríkanskra, Atlantshafs- og Miðjarðarhafstegunda lifa þar saman í sátt og samlyndi. 

  • 30 km
  • 4 km
  • 4 km
  • 3 km
  • 4 km
  • 0 km

Nánari upplýsingar um Mijas Costa

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.