Íbúð á jarðhæð, í fyrstu línu við golfvöll í Mijas Costa

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Mijas, Mijas Costa

frá 50,045,415 kr
frá 335.650€

2

2

97.48 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4506611

Einstakar golfíbúðir í fyrstu línu við golfvöll í Mijas Costa. Samstæðan er umkringd náttúru og er í aðeins 2ja mínútna akstursfjarlægð frá La Cala de Mijas og fallegum ströndum. Einnig er stutt í úrval af öllum daglegum nauðsynjum og þjónustu, eins og verslunarmiðstöðvum, matvöruverslunum, læknamiðstöð, bönkum og veitingastöðum. Staðsetningin er tilvalin fyrir golfáhugamenn, en önnur íþróttaiðkun er einnig í boði, til dæmis alls kyns vatnaíþróttir. AP-7 og A-7 hraðbrautirnar tengja samstæðuna við önnur mikilvæg ferðamannasvæði, eins og Puerto Banús á 30 mínútum, sögulegan miðbæ Marbella og Fuengirola á 25 mínútum, sem og alþjóðaflugvöllinn í Málaga á 30 mínútum.

Samstæðan er staðsett efst á hæð og samanstendur af íbúðum með 2 og 3 svefnherbergjum, fáanlegar af mismunandi gerðum; jarðhæð með yfirbyggðri verönd eða garði, miðhæð með yfirbyggðri verönd og þakíbúð með 2 svefnherbergjum með stórri verönd og fallegu sjávarútsýni. Flestar íbúðirnar bjóða upp á fallegt landslagsútsýni yfir Cala de Mijas, fjöllin og golfvellina. Nútímaleg hönnun íbúðanna nýtir sólarljósið til fulls og þær hafa rúmgóð og björt rými inni sem úti. Íbúðirnar eru með opnu alrými, með eldhúsi, borðkrók og setustofu sem opnast út á frábæra verönd. Hjónaherbergi er með sér baðherbergi og útgengi út á verönd. Allar íbúðirnar eru með loftkælingu, fataskápum, geymslu og bílastæði með foruppsetningu fyrir hleðslustöð fyrir rafbíla. Í þakíbúðunum eru 2 geymslur og 2 bílastæði innifalin í verði.

Samstæðan er algjörlega lokuð og samanstendur af nokkrum sameiginlegum svæðum, stórri sundlaug fyrir fullorðna og annarri fyrir börn, auk nokkurra garða.

Nútímalegar íbúðir sem bjóða upp á næði og nálægð við golf.

See more...

  • yfirbyggð verönd
  • bílageymsla í kjallara
  • sameiginleg sundlaug
  • sameiginlegur garður
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Mijas, Mijas Costa

La Cala, heitir þéttbýli Mijas sem liggur við ströndina. La Cala er hefðbundið þorp sem í dag er miðpunktur 12 km langrar strandlengju. Við strendurnar eru glæsileg íbúðahverfi, hótel og fjöldinn allur af annars konar þjónustu. Á svæðinu má spila golf og tennis og stunda alls kyns vatnaíþróttir, svo sem köfun eða siglingar. Þá má auðvitað baða sig í sjónum eða liggja og sleikja sólina. 

Úr fortíð svæðisins standa eftir fjórir turnar sem voru hluti af varnarvirki andalúsísku strandlengjunnar. Þá hefur hafsbotninn við Mijas mikla vistfræðilega þýðingu en þar er mikil fjölbreytni í dýralífinu og fjöldi evrópskra, afríkanskra, Atlantshafs- og Miðjarðarhafstegunda lifa þar saman í sátt og samlyndi. 

  • 35 km
  • 4 km
  • 8 km
  • 2 km
  • 8 km
  • 1 km

Nánari upplýsingar um Mijas Costa

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.