Íbúð á jarðhæð með 2 svefnherbergjum og sjávarútsýni í Torrox Costa

Costa del Sol, La Axarquía, Torrox

frá 45,030,000 kr
frá 300.000€

2

2

71.35 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4344148

Nútímaleg íbúðasamstæða, 600m frá ströndinni í Torrox Costa, íbúðahverfi við austurströnd Málaga héraðs. Samstæðan liggur á milli bæjanna Torrox Costa og Nerja, þar sem fullt úrval daglegrar þjónustu og þæginda er í boði. Þetta svæði í Andalúsíu er þekkt fyrir fallegt náttúrulandslag, sem og dæmigerðu „hvítu þorpin“. Fyrir útivistarfólk er mikið úrval af afþreyingu í boði á svæðinu, fjölmargar gönguleiðir, ýmsir golfvellir og kjarninn er í aðeins 15 mínútna fjarlægð frá Caleta de Vélez smábátahöfninni. A-7 og AP-7 hraðbrautirnar tengja svæðið við aðrar stórborgir Costa del Sol, en Málaga flugvöllur, sem er í 50 mínútna fjarlægð, tengir svo við restina af Evrópu.

Kjarninn samanstendur af íbúðum með 2 og 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Velja má milli gerða á jarðhæð með garði eða gerða á miðhæð með rúmgóðri verönd. Alrýmið er opið og sameinar eldhús, borðstofu og stofu. Stóru gluggarnir í setustofunni opnast út á austur-, suður- eða vesturverönd og bjóða upp á ótrúlegt sjávarútsýni. Íbúðirnar eru byggðar með vönduðum innréttingum og þeim fylgja eldhústæki, loftkæling, myndavélardyrasími, auk geymslu og bílastæðis í bílakjallara, með foruppsetningu fyrir hleðslustöð fyrir rafbíl.

Kjarninn er lokaður og býður upp á 24 klst. öryggiseftirlit með kóðaðri aðgangsstýringu. Sameiginlegt svæði hefur stóra sundlaug sem umkringd er sólbaðssvæði og fallegum görðum með aðgengilegum göngustígum.

See more...

  • verönd
  • eigin garður
  • sameiginleg sundlaug
  • sameiginleg bílastæði
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa del Sol, La Axarquía, Torrox

Bærinn Torrox er staðsettur við austur Costa del Sol, við rætur Miðjarðarhafsins og við rætur fjallgarðsins Sierra de Almijara. Torrox er eitt sveitarfélaga sem tilheyra La Axarquía og þar er íbúafjöldi tæplega 19.000 manns. Bærinn skiptist í tvö ólík þéttbýli; gamla bæ Torrox sem liggur inni í landi og strandsvæði Torrox þar sem flestir eru búsettir. Þess má geta að þarna má finna eina stærstu nýlendu Þjóðverja á Spáni. 

Nálægðin við fjöllin og nálægð við strönd, gera það að verkum að hitastigið í Torrox er milt, jafnt að vetri sem sumri. Meðalhitastig á ári er um 18,2 °C og ekki munar miklu milli árstíðanna, þar er suðrænt hitastig að jafnaði. 

Ef eitthvað stendur uppúr í Torrox, eru það strendurnar og söguleg og listræn arfleifð. Nálægt vitanum má finna fornleifar frá tímum Rómverja auk varðturna frá fimmtándu öld. Við mælum með gönguferð um gamla bæinn, um þröngar götur með hvítkölkuðum húsum og svölum sem skreyttar eru litríkum blómum. 

  • 66 km
  • 12 km
  • 39 km
  • 0 km
  • 5 km
  • 12 km

Nánari upplýsingar um Torrox

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.