Íbúð, innan við 250m frá ströndinni í Torrevieja

Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Torrevieja

Þessi eign er ekki í boði


2

2

60.60 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4430366

Nýjar íbúðir, innan við 250m frá El Cura ströndinni, einni vinsælustu strönd Torrevieja. Öll nauðsynleg dagleg þjónusta, eins og matvöruverslanir, barir og veitingastaðir, apótek, strætóstöð og fleira, er í göngufæri, sem gerir þetta að kjörnum stað fyrir þá sem vilja vera án bíls. Njóttu þess að rölta meðfram líflegu göngusvæðinu á ströndinni, sem býður upp á frábært úrval veitingastaða og afþreyingar. Þessar íbúðir eru tilvalið fjárfestingartækifæri.

Í boði eru íbúðir með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum og þakíbúðir með 1 eða 2 svefnherbergjum. Alrýmið hefur bjarta og opna hönnun sem sameinar setustofu, borðstofu og eldhús og opnast út á verönd. Sameiginleg sundlaug og afslöppunarsvæði er á þaki byggingarinnar og er fyrir alla íbúa. Þakíbúðir hafa eigin þakverönd að auki.

Íbúðirnar eru afhentar með foruppsetningu fyrir loftkælingu, innbyggðum fataskápum, rafmagnsgluggahlerum og myndavélardyrasíma. Gegn aukakostnaði má fá bílastæði í bílakjallara og/eða geymslu.

See more...

  • verönd
  • sameiginleg sundlaug
  • sameiginlegur garður
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Torrevieja

Torrevieja er borg þar sem njóta má lífsins utandyra, borg sem horfir alltaf til sjávar, borg sem er stútfull af hefðum og venjum en um leið nútímaleg og opin öllum sem vilja njóta lífsstílsins við Miðjarðarhafið. Borgin býr að einstöku loftslagi sem byggir á nálægð sjávar og staðsetningu hennar á Íberíuskaganum sem slíkum og þessi staðreynd býður okkur uppá meðalhita um 18ºC og meira en 300 sólskinsdaga á ári.

Það fyrsta sem vekur athygli í Torrevieja er umhverfið, þar sem tvö saltlón standa upp úr, annað bleikt en hitt grænt en vötnin eru hluti af þjóðgörðum Lagunas de La Mata og Torrevieja.

Þegar talað er um borgina er við hæfi að nefna tvennt; sjó og salt. Salt er hinn sanni uppruni þessa bæjar. Allt fram á miðja 20. öld var saltiðnaður aðalatvinnuvegur íbúa Torrevieja og í dag er Torrevieja einn helsti saltframleiðandi Spánar með um 600.000 tonna framleiðslu að meðaltali á ári.

Strandlengja Torrevieja er löng, eða samtals 14 km, þar sem finna má fjöldann allan af þéttbýlisströndum, víkum og skotum til að kæla sig í, en mörgum þeirra má hreinlega líkja við paradís.

Strendur Torrevieja eru vottaðar samkvæmt gæðastöðlum og umhverfisstjórnun. Torrevieja hefur þannig gæðastimpil sem hún má vera stolt af.

Mismunandi hefðbundnar hátíðir eru haldnar allt árið í borginni, svo sem páskagöngurnar eða sjógangan til heiðurs La Virgen del Carmen þann 16. júlí.

Maí hátíðin er líka mjög vinsæl meðal íbúa og gesta, með dæmigerðum básum, vínum, matargerð og tónlistarviðburðum. Torrevieja sameinar skemmtun og menningu fullkomlega.

Borgin tekur á móti þér opnum örmum og þú ert velkominn á fallegum stað fullum af lífi, menningu og skemmtun.

  • 37 km
  • 11 km
  • 26 km
  • 0 km
  • 4 km
  • 9 km

Nánari upplýsingar um Torrevieja

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.