Íbúð á jarðhæð með einkasundlaug, 100 metra frá ströndinni í Santiago de la Ribera

Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago

Þessi eign er ekki í boði


2

2

72.10 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 3616073

Einstakar íbúðir innan við 100 metra frá ströndinni í Santiago de la Ribera, við Costa Cálida. Staðsett nálægt göngusvæðinu með verslunum, börum og veitingastöðum. Aðalbærinn San Javier býður upp á fullkomið úrval stórmarkaða, verslana, banka og apóteka. Samstæðan er nálægt íþróttasvæði, með tennis- og paddelvöllum, sem og fótboltavelli. Þá eru einnig ýmsir golfvellir í stuttri akstursfjarlægð.

Kjarninn býður upp á íbúðir með 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og einkasundlaug. Velja má milli jarðhæðar með einkagarði eða efstu hæðar með þakverönd. Íbúðirnar bjóða uppá opna hönnun sem sameinar setustofu, borðkrók og eldhús með aðskildu þvottahúsi. Bæði svefnherbergin eru með en-suite baðherbergi og hjónaherbergið er með sér fataherbergi. Stórar glerhurðar í stofu opnast út á verönd sem leiðir út í garðinn eða uppá þakveröndina, eftir því á hvorri hæðinni eignin er.

Auk glæsilegrar staðsetningar og hönnunar, eru íbúðirnar einnig með loftkælingu, eldhústækjum, innbyggðum fataskápum, einkasundlaug með foruppsetningu fyrir varmadælu og eigin bílastæði.
See more...

  • einkasundlaug
  • verönd
  • eigin garður
  • einkabílastæði
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago

San Javier er bær við Costa de Murcia en honum tilheyra 23 km af strönd við Mar Menor og 16 km við Miðjarðarhafið. 

 Auk bæjarkjarna San Javier, má þarna finna aðra bæi, eins og Santiago de La Ribera og La Manga del Mar Menor. Santiago de la Ribera býr að 4 km strönd þar sem Castillico, Barnuevo og Colón, standa uppúr enda merktar gæðastimpli ferðaþjónustunnar. Þjónusta er almennt góð á svæðinu en nefna má flugvöllinn í Murcia og sportbátaklúbbinn sem býður upp á fjölmargar vatnaíþróttir árið um kring.

  • 41 km
  • 11 km
  • 27 km
  • 0 km
  • 19 km
  • 16 km

Nánari upplýsingar um San Javier - Santiago

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.