Íbúð með stórri verönd í fyrirtaks íbúðahverfi í Benahavís

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Benahavís

Þessi eign er ekki í boði


3

2

101.15 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4009125

Nýr íbúðakjarni á hinu glæsilega svæði La Quinta Golf Resort & Spa, í bænum Benahavís. Golfsvæðið hefur alls 27 holur, sem dreifast á þrjá 9 holu velli og býður upp á úrval af leikmöguleikum. Svæðið er í fallegu náttúrulegu umhverfi, umkringt fjöllum og staðsetningin tilvalin til að spila golf og njóta alls þess sem Costa del Sol hefur upp á að bjóða að auki. Dásamlegar strendur má finna í aðeins 7 km fjarlægð en Puerto Banús, og stórkostlegt úrval sem þar má finna af þjónustu, afþreyingu og veitingastöðum er í aðeins 10 mínútna fjarlægð með bíl og San Pedro de Alcántara í 5 mínútna fjarlægð. Alþjóðaflugvöllurinn í Málaga er í 45 mínútna akstursfjarlægð.

 

Kjarninn býður upp á nútímalegar íbúðir með víðáttumiklu útsýni yfir golfvöllinn í kring og fallegan dalinn, sem skapar rólegt andrúmsloft og næði. Íbúðirnar eru fáanlegar með 3 svefnherbergjum og af mismunandi gerðum; jarðhæð með garði, miðhæð með stórri verönd og þakíbúðir með þakverönd.

Kjarninn er lokaður með einkaaðgangi fyrir íbúa sem stuðlar að auknu öryggi og næði. Einstök sameiginleg svæði með görðum og sameiginlegri sundlaug, sólbekkjum og salernum eru í kjarnanum og öllum íbúðunum fylgir geymsla og bílastæði, með foruppsetningu fyrir hleðslustöð fyrir rafbíla í bílakjallara (þakíbúðunum fylgja tvö stæði).
See more...

  • verönd
  • bílastæði
  • sameiginleg sundlaug
  • sameiginlegur garður
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Benahavís

Benahavís er fjallaþorp í Málaga héraði, staðsett 7 km frá ströndinni. Bærinn liggur milli Marbella, Estepona og Ronda, við vestur Costa del Sol og er vinsæll sökum úrvals veitingastaða og fyrir það að vera hvítt þorp með dæmigerðu arabísku skipulagi. 

Benahavís stendur 150 m yfir sjávarmáli. Loftslagið er Miðjarðarhafsloftslag, með meðalhita á ári um 17º C. Íbúafjöldi er um 7.700 en meira en helmingur íbúa eru erlendir ríkisborgarar. 

Þorpið tengir einkenni hefðbundinna hvítra þorpa í Málaga héraði við nútímann og gæði innviða í ferðamannaþjónustu. Þar eru samankomnir tugir golfvalla og fjölbreytt aðstaða til ævintýraíþrótta í fallegu náttúrulegu umhverfi þar sem finna má fjölbreytt úrval veitingastaða. 

  • 67 km
  • 5 km
  • 34 km
  • 5 km
  • 12 km
  • 1 km

Nánari upplýsingar um Benahavís

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.