Facebook Pixel

Hvað er skoðunarferð?

Þegar þú skipuleggur ferðina þína með Medland á Spáni, munum við aðstoða þig við að spara tíma. Við bjóðum þér sérsniðna og persónulega skoðunarferð.

Í skoðunarferð færðu faglega aðstoð við að finna draumaeignina þína, innan þinna verðmarka. Þetta felur í sér 3-4 daga heimsókn þar sem fasteignaráðgjafinn þinn fylgir þér og skoðaðir eru möguleikar sem uppfylla allar kröfur þínar.

Við sækjum þig á flugvöllinn og ökum með þér að hótelinu, þar sem þú getur skilið farangurinn þinn eftir. Skoðun á fasteignum er skipulögð í samræmi við lendingartíma, þannig er ýmist hafist handa samdægurs eða strax morguninn eftir lendingu.

Vel skipulögð ferð sparar þér mikinn tíma en aksturinn um svæðið og heimsóknir í sýningarhús eru skipulagðar með staðsetningar og fjarlægðir í huga og séð til þess að engum tíma sé sóað í óþarflega mikinn akstur. Þá er einnig miðað við það að þú hafir tíma til hvíldar á meðan á dvölinni stendur.

Finnirðu eign sem þér líkar við og þú vilt festa kaup á, mun fasteignaráðgjafinn þinn aðstoða þig við allt sem nauðsynlegt er að gera

Medland á Spáni er frábrugðin öðrum fasteignasölum að því leyti að við sérhæfum okkur í sölu á nýjum og fallega hönnuðum eignum, þar sem valið stendur um yfir 300 ólík fasteignaverkefni við norður og suður Costa Blanca og Costa Cálida ströndina – allt frá íbúðum til glæsilegra einbýlishúsa með stórkostlegu útsýni yfir hafið.

Skoðunarferð með okkur felur í sér:

    • Persónulegan eignalista samkvæmt fyrirfram ákveðnu verðþaki.
    • Akstur milli flugvallar og hótels.
    • Gistingu á 4* hóteli í 3 nætur.
    • Morgunverð og hádegisverð meðan á skoðun stendur.
    • Kynningu á ólíkum svæðum og eignum.
    • Við komum á fundi með enskumælandi lögmanni og bankafulltrúa komi til kaupa.
    • Við komum þér í samband við leigumiðlun, óskirðu þess.
    • Eftirsöluteymið okkar kemur til með að aðstoða þig við húsgagnakaup og annað sem tengist eigninni þinni.