Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Benijófar
REF 3782451
Kjarni einbýlishúsa á rótgrónu svæði í bænum Benijófar við suður Costa Blanca. Bærinn býður upp á gott úrval af daglegum nauðsynjum, ásamt enn meira úrvali í nágrannabæjunum Rojales og Ciudad Quesada. Ýmis íþrótta- og tómstundaaðstaða er í boði í stuttri akstursfjarlægð, svo sem La Marquesa golfvöllurinn, vatnagarður og frábærar strendur Guardamar.
Hér er tækifæri til að byggja draumahúsið á lóðum frá 450m2-500m2, en boðið er uppá tvær gerðir húsa sem að auki má aðlaga að ýmsum óskum. Velja má milli einbýlishúss á einni hæð, með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, eða tveggja hæða húss með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum. Báðar gerðirnar eru með opinni setustofu, borðkrók og eldhúsi en alrýmið opnast út á rúmgóða verönd og sundlaugarsvæði. Innifalin er stór þakverönd þar sem hægt er að njóta þess að vera úti við. Gegn aukakostnaði og eftir byggingarstigi má koma fyrir allt að 2 auka svefnherbergjum og baðherbergi.
Húsin eru afhent tilbúin til uppsetningar á loftkælingu, þeim fylgir gólfhiti á baðherbergjum, fataskápar, rafmagnsgluggahlerar í svefnherbergjum, einkasundlaug, garður og bílastæði á lóð.Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Benijófar
Fasteignaúrvalið í Benijófar er mjög fjölbreytt, nægir þar að nefna úrval einbýla og raðhúsa. Falleg hönnun á einbýlum og fyrsta flokks gæði á samkeppnishæfu verði. Skoðið fasteignaframboðið í Benijófar
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum