Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Guardamar
Þessi eign er ekki í boði
REF 58575
Glæsilegur íbúðakjarni í Guardamar, nálægt miðbænum og í aðeins 1,5 km fjarlægð frá frábærum ströndum Guardamar. Hverfið er rólegt og öll þjónusta í nágrenninu. Góð vegatenging er við flugvöllinn í Alicante og helstu borgir suður Costa Blanca.
Lokaður kjarni með tveimur afbragðs sameiginlegum svæðum; inni og úti. Úti er sundlaug og garðar en inni er frábært Spa með hitaðri laug, jacuzzi, líkamsræktaraðstöðu, tyrknesku og finnsku gufubaði og búningsklefum.
Ýmsar gerðir eigna eru í boði; jarðhæðaríbúðir með garði, efri hæðar íbúðir með þakverönd og parhús með garði og þakverönd.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Guardamar
Guardamar er einn af helstu ferðamannastöðunum við Suður Costa Blanca, ásamt Orihuela Costa, Torrevieja og Santa Pola.
Guardamar hefur 11 km. langa mishæðótta strönd og þar má njóta átta breiðra, gullinna stranda. Þar á meðal eru nektarströndin Los Tusales og hin fallega Pinada, við hlið hreyfanlegu sandhólana sem liggja meðfram sjávarsíðunni í Guardamar. Fasteignir sem í boði eru í Guardamar eru á breiðu verðbili. Sérstakt úrval er að finna í fasteignum við ströndina, með ótrúlegu sjávarútsýni og fyrsta flokk gæðum. Hér má sjá fasteignirnar við ströndina í Guardamar
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum