Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Campoamor
REF 3057017
Kjarni einbýlishúsa sem staðsettur er aðeins 410 metra frá ströndinni í Dehesa de Campoamor. Fallegt svæði við suður Costa Blanca sem býr að smábátahöfn og verslanaaðstöðu sem tekur aðeins nokkrar mínútur að nálgast með bíl.
Í boði eru nútímaleg einbýlishús á tveimur hæðum með þakverönd, byggð á 500m2 lóðum. Húsin hafa 4 svefnherbergi og 4 baðherbergi, opna stofu og borðstofu á aðalhæð með aðskildu eldhúsi. Hjónaherbergi og 2 baðherbergi (1 en-suite) má einnig finna á þeirri hæð. Glæsileg 63m2 verönd liggur útfrá stofu með borðstofu sem búin er pergólu.Garðhæðin sem liggur fyrir neðan aðalhæð húsanna, hefur 3 hjónaherbergi og 2 baðherbergi (1 en-suite) ásamt þvottahúsi. Þakverönd er á húsunum, með útsýni yfir einkasundlaugina og fallegt garðsvæðið.
Húsin eru hönnuð til að mæta kröfum þínum í framtíðinni með því að bjóða upp á val um ákveðna hluti á garðhæð og þakverandarhæðinni. Velja má milli ólíks skipulags, svo sem bæta við lokuðum bílskúr með því að fjarlægja svefnherbergi á garðhæðinni eða bæta við allt að 4 auka svefnherbergjum með því að byggja á þakveröndinni. Biddu ráðgjafann þinn um nánari upplýsingar.
Eignunum fylgir loftkæling, eldhústæki, fataskápar og myndavélardyrasími. Gert er ráð fyrir að hægt sé að setja upp útieldhús, garður er fullfrágenginn og gólfhiti er á baðherbergjum. Einkasundlaug og bílastæði á lóð fylgja.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Campoamor
Campoamor hefur að geyma eitt fegursta landslag á allri Orihuela Costa. Hið fullkomna jafnvægi milli stranda og furuskóganna, sem ná allt frá Sierra Escalona til Dehesa de Campoamor, gera að verkum að þetta er hinn fullkomni staður til að finna fasteign nálægt ströndu í náttúrulegu umhverfi.
Hér má sjá fasteignirnar við ströndina í Campoamor
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum