Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, La Zenia
Þessi eign er ekki í boði
REF 184904
Lúxus einbýli aðeins 150 metra frá ströndinni í La Zenia. Í hverfinu ráða einbýlishús ríkjum og auðveldur aðgangur er að ströndum eins og Cala Cerrada, Playa Flamenca og La Zenia. Stutt er í stóra verslunarkjarna, þar á meðal Zenia Boulevard verslunarmiðstöðina.
Húsið er stórt og byggt á tveimur hæðum. Á jarðhæð er opið rými með yfir 60 m2 stórri stofu og borðstofu auk nýtísku eldhúss. Á þeirri hæð er einnig stórt svefnherbergi með eigin baðherberi, auk gestasalernis. Á efri hæð eru 3 svefnherbergi, tvö af þeim með eigin baðherbergi og fataherbergi og auk þess má finna skrifstofu og eitt baðherbergi til á þessari hæð. Öll herbergi efri hæðar hafa eigin svalir. Stór verönd er við húsið og einkasundlaug í garðinum.