Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Þessi eign er ekki í boði
REF 1742370
Nýr raðhúsakjarni í Villamartín, aðeins 2 km frá golfvellinum og verslunarkjarna, með fjölbreyttu úrvali verslana og tómstundaaðstöðu og í aðeins 5 mínútna akstursfjarlægð frá Zenia Boulevard verslunarmiðstöðinni og ströndum Orihuela Costa.
Húsin eru á tveimur hæðum með þakverönd og samanstanda af rúmgóðri og bjartri stofu, borðstofu, nútíma eldhúsi og 3 baðherbergjum en velja má milli 2ja eða 3ja svefnherbergja. Þriðja svefnherbergið yrði sett upp á jarðhæð og tekur þannig til sín af stofunni. Öll húsin hafa verönd og bílastæði á lóð. Sameiginlegur sundlaugargarður er við kjarnann og einnig er hægt að byggja einkasundlaug á lóðinni.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Villamartín er íbúðahverfi við Orihuela Costa, byggt við golfvöllinn Villamartín. Völlinn hannaði P. Puttman og var hann vígður árið 1972. Mikil gróðursæld er við völlinn eftir öll þessi ár.
Fyrir þá sem vilja njóta lífsins í aðeins 5 km fjarlægð frá ströndinni, er Villamartín góður kostur, enda næg þjónusta í hverfinu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum