Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Þessi eign er ekki í boði
REF 206598
Nýr íbúðakjarni staðsettur á besta svæði Villamartin, íbúðabyggð í nánd við alla nauðsynlega þjónustu, rétt við golfvöllinn og mjög nálægt nokkrum af bestu ströndum Orihuela Costa. Kjarninn samanstendur af 2ja og 3ja svefnherbergja íbúðum með stórum veröndum og þakíbúðum með stórkostlegu útsýni. Allur frágangur á íbúðunum er vandaður og möguleiki er að festa kaup á bílastæði og geymslu.
Í sameign er stórt sameiginlegt svæði með görðum og sundlaug.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Villamartín er íbúðahverfi við Orihuela Costa, byggt við golfvöllinn Villamartín. Völlinn hannaði P. Puttman og var hann vígður árið 1972. Mikil gróðursæld er við völlinn eftir öll þessi ár.
Fyrir þá sem vilja njóta lífsins í aðeins 5 km fjarlægð frá ströndinni, er Villamartín góður kostur, enda næg þjónusta í hverfinu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum