Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Þessi eign er ekki í boði
REF 3360675
Nýr íbúðakjarni í Villamartín, við suður Costa Blanca. Nálægt fjölbreyttum daglegum þægindum, verslunum, börum og veitingastöðum, sem og fjórum golfvöllum í innan við 10 km radíus. Strendur Orihuela Costa sem og Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin eru í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð.
Í boði eru íbúðir með 2 eða 3 svefnherbergjum, ýmist á jarðhæð með garði eða efstu hæð með þakverönd. Allar íbúðirnar eru með opinni stofu, borðstofu og fullbúnu eldhúsi en alrýmið opnast út á rúmgóða verönd sem snýr í suður. Sameiginlega svæðið er skemmtilega hannað eins og vin í eyðimörk, með stórri sundlaug fyrir fullorðna og börn, garðsvæðum með háum pálmatrjám, líkamsræktarstöð og bílakjallari með geymslum er til staðar.
Íbúðirnar eru afhentar tilbúnar til uppsetningar á loftkælingu, þeim fylgja eldhústæki, gólfhiti er á baðherbergjum og fataskápar, bílastæði og geymsla er innifalin í verði.Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Villamartín er íbúðahverfi við Orihuela Costa, byggt við golfvöllinn Villamartín. Völlinn hannaði P. Puttman og var hann vígður árið 1972. Mikil gróðursæld er við völlinn eftir öll þessi ár.
Fyrir þá sem vilja njóta lífsins í aðeins 5 km fjarlægð frá ströndinni, er Villamartín góður kostur, enda næg þjónusta í hverfinu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum