Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Þessi eign er ekki í boði
REF 66073
Nýr íbúðakjarni í Villamartín en svæðið er vinsælt og byggt í kringum golfvöll með sama nafni. Öll þjónusta er í nágrenninu og að auki aðeins 5 mínútna akstur að bestu ströndum Orihuela Costa.
Margar íbúðanna búa að flottu útsýni þar sem byggt er í dálítilli hæð. Í boði eru íbúðir með 1, 2 eða 3 svefnherbergjum og 30 m2 svölum sem allar snúa í bæði suður og norður, svo að njóta megi Miðjarðarhafsloftslagsins til fulls. Góð sameign er í kjarnanum svo sem stór bílageymsla í kjallara, sundlaugarsvæði ætlað bæði börnum og fullorðnum, hjólageymsla og þakverönd með aðstöðu til afslöppunar og frábæru útsýni yfir svæðið. Kjarninn er lokaður.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Villamartín er íbúðahverfi við Orihuela Costa, byggt við golfvöllinn Villamartín. Völlinn hannaði P. Puttman og var hann vígður árið 1972. Mikil gróðursæld er við völlinn eftir öll þessi ár.
Fyrir þá sem vilja njóta lífsins í aðeins 5 km fjarlægð frá ströndinni, er Villamartín góður kostur, enda næg þjónusta í hverfinu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum