Costa Blanca Norður, L'Alacantí, El Campello
Þessi eign er ekki í boði
REF 5617
Glæsilegur íbúðakjarni í El Campello, Norður-Costa Blanca, aðeins örfáa kílómetra frá Alicante borg. Íbúðirnar eru staðsettar við hlið TRAM lestarstöðvarinnar, sem tengir Alicante við aðalstrandsvæðin allt til Denia. Við hlið kjarnans er enn fremur 35 þúsund fermetra garður með fallegum gróðri, tilvalinn fyrir þá sem iðka hreyfingu en garðurinn tryggir stórbrotið útsýni til hafs frá íbúðunum eftir staðsetningu þeirra. Fullkomin staður fyrir íbúðir í fyrsta klassa.
Velja má milli mismunandi eigna sem snúa í ólíkar áttir og eru búnar 1, 2 eða 3 svefnherbergjum. Sameiginleg sundlaug, chill-out svæði, félagsheimili, leikvöllur og bílastæðahús í kjallara fylgir með í kaupunum.
Costa Blanca Norður, L'Alacantí, El Campello
Campello er borg í hjarta Costa Blanca og mjög nálægt stærstu borgunum, í 10 km. fjarlægð frá Alicante og 30 km. frá Benidorm. Fiskiþorp sem á síðustu árum hefur aðlagað sig breyttum áherslum og er nú vinsæll fyrsta flokks ferðamannastaður.
Meðfram 23 km. langri ströndinni, sem er sú lengsta á Costa Blanca, er að finna margskonar íbúðabyggðir með miklu fasteignaframboði. Í gamla miðbænum og nálægt ströndinni einkennist úrvalið af gæðum á góðu verði. Í útjaðri borgarinnar eru nýlegar íbúðabyggðir og eru það aðallega einbýli og raðhús, mörg hver með ótrúlegu sjávarútsýni. Skoðið fasteignaframboðið við ströndina í El Campello
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum