Costa Blanca Norður, Marina Alta, Cumbre del Sol
Þessi eign er ekki í boði
REF 319641
Glæsilegt einbýlishús í Cumbre del Sol. Hverfið er staðsett á einstaklega fallegu svæði, með frábæru útsýni yfir hafið og Peñón de Ifach klettinn og í göngufæri við bæina Benissa, Calpe og Moraira.
Aðkoma að húsinu er efst í lóðinni sem er 1565 m2 að stærð. Á þeirri hæð eru þrjú af fjórum svefnherbergjum hússins, öll með baðherbergi og aðgangi að stórri verönd með útsýni yfir hafið. Á miðhæð er hjónaherbergi með fullbúnu baðherbergi, fataherbergi og aðgangi að verönd, eldhús með búri, gestasalerni og falleg stofa með töfrandi útsýni. Bæði stofa og eldhús hafa aðgang að garðinum og sundlauginni. Á neðri hæð er stórt alrými og útisvæði með grillaðstöðu og svæði til að slaka á. Þökk sé vandaðri utanhússhönnun býður eignin uppá nokkur ólík svæði til að njóta sólarinnar og veðurblíðunnar við Miðjarðarhafið, svo sem stóra verönd með útiborðstofu, svæði fyrir sófa og sundlaugarsvæði með Jacuzzi og sólbekkjum. Frá öllum einingum hússins má njóta glæsilegs útsýnis yfir hafið, þökk sé legu þess og stórum gluggum. Innifalið í verði er loftkæling, hiti í gólfum og Smart þjófavarnarkerfi.
Costa Blanca Norður, Marina Alta, Cumbre del Sol
Cumbre del Sol tilheyrir bæjarfélaginu Benitachell, sem liggur milli tveggja vel þekktra bæja, Jávea og Moraira, og er í aðeins 12 km fjarlægð frá Calpe, 10 km frá AP7 hraðbrautinni, 30 km frá Benidorm, 75 km frá Alicante og 102 km frá Valencia.
Magnaðir klettar, sem sumir eru yfir 100 metra háir bjóða íbúum svæðisins uppá stórkostlegt útsýni yfir hafið frá nokkrum útsýnisstöðum umkringdum vernduðum svæðum eins og þjóðgarðinum Natural Park of Granadella, þar sem ganga má í hæðunum yfir klettana og skoða hellana
Strandlengjan við Benitachell er tilvalin fyrir þá sem hafa gaman af köfun og öðrum vatnaíþróttum. Frá Cumbre del Sol er beinn aðgangur að þremur fallegustu klettavíkum héraðsins, Cala Moraig, Cala de Los Testos, og Cala del Llebeig.
Nálægð svæðisins við bæina Jávea og Moraira gerir það að tilvöldum stað fyrir þá sem leita að eign við Costa Blanca í gríðarfallegri náttúru þar sem að auki má finna góða þjónustu. Cumbre del Sol er þannig einstök staðsetning.
Svæðið teygir sig eftir strandlengjunni um 3.700.000 m2, og skiptist í nokkur íbúðahverfi með einbýlum, raðhúsum og íbúðum sem öll eru umkringd gróðursælum reitum og Miðjarðarhafið er skammt undan.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum