Costa Blanca Norður, Marina Alta, Cumbre del Sol
Þessi eign er ekki í boði
REF 4630200
Glæsilegt einbýli í einstakri íbúabyggð í Cumbre de Sol, á milli borganna Jávea og Moraira, á Costa Blanca Norte. Cumbre de Sol er byggt á landfyllingu við ströndina svo útsýni er stórkostlegt til allra átta og yfir Miðjarðarhafið, á góðum dögum er hægt að sjá yfir að Ibiza. Fallegt umhverfi, með gönguleiðum og dásamlegum víkum með tærum sjó. Í byggðinni er að finna ýmsa þjónustu, þar á meðan alþjóðlegan framhaldsskóla, veitingastaði og íþróttaklúbba. Í nokkurra mínútna akstursfjarlægð til nálægra borga er að finna meira úrval þjónustu og skemmtana, með fjölda verslunarmiðstöðva, banka, apótek, veitingastaði,að ónefndum golf- og siglingaklúbbum.
Í boði er einstakt einbýli með 4 svefnherbergjum, á lóð sem nær yfir 744m2. Á jarðhæð er að finna stóra stofu, borðstofu og nútímalegt eldhús með nesi. Gólfhæðarháir gluggar stofunnar opnast út á stóra verönd með stórri sundlaug og stórkostlegu útsýni yfir hafið. Jarðhæðin samanstendur af 2 svefnherbergjum, sameiginlegu baði og öðru svefnherbergi með sérbaðherbergi og fataherbergi. Kjallarinn skiptist í nokkur afmörkuð rými. Rými fyrir bílskúr með lagnaherbergi og geymslu; annað rými fyrir aðra stofu, svefnherbergi og baðherbergi; og að lokum stór yfirbyggð verönd með fallegu útsýni yfir hafið.
Hús sem byggt er eingöngu með fyrsta flokks efni sem hægt er að sérsníða eftir eigin höfði, eftir því á hvaða stigi byggingin er. Meðal annarra þæginda má nefna loftræstingu um stokk, hita í öllum gólfum, full útbúið eldhús með heimilistækjum, rafknúnar gardínur, viðvörunarkerfi, grillsvæði á verönd, einkasundlaug og rafknúin bílskúrshurð.
Costa Blanca Norður, Marina Alta, Cumbre del Sol
Cumbre del Sol tilheyrir bæjarfélaginu Benitachell, sem liggur milli tveggja vel þekktra bæja, Jávea og Moraira, og er í aðeins 12 km fjarlægð frá Calpe, 10 km frá AP7 hraðbrautinni, 30 km frá Benidorm, 75 km frá Alicante og 102 km frá Valencia.
Magnaðir klettar, sem sumir eru yfir 100 metra háir bjóða íbúum svæðisins uppá stórkostlegt útsýni yfir hafið frá nokkrum útsýnisstöðum umkringdum vernduðum svæðum eins og þjóðgarðinum Natural Park of Granadella, þar sem ganga má í hæðunum yfir klettana og skoða hellana
Strandlengjan við Benitachell er tilvalin fyrir þá sem hafa gaman af köfun og öðrum vatnaíþróttum. Frá Cumbre del Sol er beinn aðgangur að þremur fallegustu klettavíkum héraðsins, Cala Moraig, Cala de Los Testos, og Cala del Llebeig.
Nálægð svæðisins við bæina Jávea og Moraira gerir það að tilvöldum stað fyrir þá sem leita að eign við Costa Blanca í gríðarfallegri náttúru þar sem að auki má finna góða þjónustu. Cumbre del Sol er þannig einstök staðsetning.
Svæðið teygir sig eftir strandlengjunni um 3.700.000 m2, og skiptist í nokkur íbúðahverfi með einbýlum, raðhúsum og íbúðum sem öll eru umkringd gróðursælum reitum og Miðjarðarhafið er skammt undan.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum