Costa Blanca Norður, Marina Baja, Finestrat
Þessi eign er ekki í boði
REF 2592859
Nýr kjarni einbýlishúsa á Sierra Cortina svæðinu, sem einkennist af náttúrulegu landslagi með útsýni yfir fjöllin og Miðjarðarhafið. Stutt er að aka til ýmissa verslanakjarna sem bjóða upp á alla nauðsynlega þjónustu, svo sem matvöruverslanir, banka, bari, verslanir og veitingastaði. Stórkostlegar strendur Benidorm, sem og dægradvöl og skemmtigarðar, eru í innan við 15 mínútna akstursfjarlægð.
Nútímaleg einbýlishús á tveimur hæðum, byggð á lóðum frá 436m2, með 3 svefnherbergjum, 3 baðherbergjum og þakverönd. Stórir gluggar í stofu veita birtu inn í alrýmið; stofu, borðstofu og eldhús og útúr stofu er gengið útá veröndina. Á jarðhæð er einnig hjónaherbergi og baðherbergi. Efri hæðin samanstendur af 2 svefnherbergjum, hvort um sig með sér verönd og ótrúlegu útsýni yfir sjóinn við Benidorm. Hjónaherbergi er með en-suite baðherbergi og fataherbergi. Verönd hússins og sundlaugarsvæði snýr í suður og er kjörinn staður til að njóta hefðbundinnar útiveru við Miðjarðarhafið.
Öll húsin hafa verið hönnuð með hágæða frágangi. Meðal aukahluta sem fylgja með eru loftkæling/hitun, fataskápar, lýsing, inni og úti, uppsetning fyrir hitadælu fyrir sundlaugina ef fólk vill bæta henni við og bílastæði á lóð, með hleðslustöð fyrir rafbíl.
Costa Blanca Norður, Marina Baja, Finestrat
Finestrat er einn af bæjunum í Alicante-héraði sem sameinar kjarna svæðisins: sjó og fjöll.
Finestrat þýðir fjall, vegna þess að söguleg miðbær bæjarins liggur við rætur hins glæsilega Puig Campana, sem er tvímælalaust sá tindur sem hefur mestan karakter í öllu héraðinu. Finestrat er líka Miðjarðarhafið; fleyglaga bæjarsvæðið nær allt að ströndinni við Cala Morales, almennt þekkt sem Cala de Finestrat.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum