Costa Blanca Norður, Marina Baja, Finestrat
Þessi eign er ekki í boði
REF 5156
Lúxus einbýli í Sierra Cortina hverfinu, einstakri lúxusbyggð með stórkostlegu útsýni yfir Benidorm flóann.
Sierra Cortina býður upp á góða þjónustu, svo sem íþrótta- og félagsklúbb með líkamsrækt og spa, 4 paddle völlum og tennisvelli, kaffihúsi og veitingastað. Þar er ennfremur 18 holu golfvöllur. Sierra Cortina er án efa ein besta staðsetningin fyrir þá sem kjósa forréttindi og leita að lúxuseign á Spáni.
Einbýlin eru í nýlendustíl með nútímalegum innviðum og fyrsta flokks gæðum. Yfir 200 m2 eignir byggðar á lóðum frá 617 til 884 m2 að stærð. Öll húsin hafa 4 svefnherberg og 4 baðherbergi.
Costa Blanca Norður, Marina Baja, Finestrat
Finestrat er einn af bæjunum í Alicante-héraði sem sameinar kjarna svæðisins: sjó og fjöll.
Finestrat þýðir fjall, vegna þess að söguleg miðbær bæjarins liggur við rætur hins glæsilega Puig Campana, sem er tvímælalaust sá tindur sem hefur mestan karakter í öllu héraðinu. Finestrat er líka Miðjarðarhafið; fleyglaga bæjarsvæðið nær allt að ströndinni við Cala Morales, almennt þekkt sem Cala de Finestrat.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum