Íbúðir 3 svefnherbergjum og rúmgóðri verönd, 550m frá ströndinni í Estepona

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Estepona

frá 76,851,200 kr
frá 512.000€

3

2

249.28 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4838250

Nýr íbúðakjarni, 550m frá ströndinni í Estepona. Kjörin staðsetning, í nálægð við alls kyns þjónustu og í einungis 10 mínútna akstursfjarlægð frá sögufrægum stöðum, og í göngufjarlægð frá höfninni. Svæðið býður upp á ýmsa menningarlega staði sem og fjölbreytta afþreyingu, og veitingastaði með Michelin stjörnu. Þá er fjöldi golfvalla í 15-20 mínútna akstursfjarlægð. Estepona er með 20 km strandlengju sem teygir sig frá Puerto Banús til Sotogrande, en þar eru tvær mikilvægustu hafnir Costa del Sol svæðisins. Kjarninn er vel tengdur vegakerfinu og er auðvelt og fljótlegt að komast til helstu staða með því að nota AP-7 og A-7 hraðbrautirnar, s.s. til Marbella og Purto Banús á 30 mínútum, til Algeciras á 40 mínútum og Fungirola á 50 mínútum. Flugvöllurinn í Malaga er í klukkustundar fjarlægð og til flugvallarins í Gíbraltar eru um 45 mínútur.

Kjarninn býður upp á íbúðir með 2, 3, eða 4 svefnherbergjum, fáánlegar í ýmsum útgáfum; jarðhæðir, miðhæðir með stórri verönd, og þakíbúður með þakverönd. Allar íbúðirnar eru með stofuna, borðstofuna og eldhúsið í opnu rými sem opnast út á verönd. Hjónaherbergin eru með baðherbergi inn af og aðgengi út á verönd. Bjartar íbúðirnar njóta náttúrulegs sólarljóss og frábæra loftlagsins á Costa del Sol.

Íbúðunum fylgir geymsla og ýmist eitt eða tvö bílastæði, en það fer eftir íbúðum hversu mörg stæði fylgja.

Kjarninn er með frábær sameiginleg svæði, sérstaklega stóra sundlaug fyrir fullorðna og aðra fyrir börn, stór græn svæði og líkamsrækt.

See more...

  • verönd
  • bílastæði
  • sameiginleg sundlaug
  • sameiginlegur garður
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Estepona

Einn mest heillandi staðurinn við Costa del Sol er bærinn Estepona. Staðsettur á milli Miðjarðarhafsins og frjósams dals með lækjum og fallegu grænu fjallanna í Sierra Bermeja. Svæðið nýtur milds Miðjarðarhafsloftslags, með árlegum meðalhita upp á 17º og næstum 300 sólríka daga á ári. Allt þetta gerir bæinn að einum mikilvægasta áfangastað ferðamanna og þeirra sem eiga sitt annað heimili á suðurströnd Spánar.

Estepona hefur það besta sem fjöllin og hafið hafa upp á að bjóða. Borgin og svæðið sem henni tengist, býður upp á 23 km af fallegum ströndum með alls kyns þjónustu sem tryggir öryggi og ánægju meðfram einni lengstu strandlengju Málaga héraðs. Estepona smábátahöfnin er uppáhaldsstaður þeirra sem leita að tómstundum og skemmtun á kvöldin, sérstaklega yfir  sumarmánuðina. Sierra Bermeja fjöllin eru tilvalið náttúrusvæði til að njóta alls kyns útivistar, svo sem gönguferða, hjólreiða eða fuglaskoðunar.

  • 83 km
  • 1 km
  • 50 km
  • 1 km
  • 28 km
  • 3 km

Nánari upplýsingar um Estepona

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.