Costa Cálida, Mar Menor, Cartagena Litoral Levante, Mar de Cristal
Þessi eign er ekki í boði
REF 3075001
Nútímaleg einbýlishús með einkasundlaug, aðeins 200 metra frá ströndinni í Mar de Cristal, Costa Cálida. Á svæðinu er gott úrval þjónustu og stutt til La Manga del Mar Menor auk þess sem góð tenging er við nærliggjandi svæði. Flugvöllurinn í Murcia er í aðeins 50 mínútna akstursfjarlægð.
Í boði eru hús með þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum, byggð á einni hæð, auk stórrar þakverandar með grillaðstöðu.
Öllum eignum fylgja eldhústæki, loftkæling/hitun, led lýsing, inni sem úti og einkasundlaug og bílastæði á lóð.
Costa Cálida, Mar Menor, Cartagena Litoral Levante, Mar de Cristal
Mar de Cristal tilheyrir Cartagena eins og áður segir. Ströndin þar er þekkt fyrir tært vatnið eins og nafnið gefur til kynna en Cristal þýðir gler.
Ströndin hefur oftast verið heiðruð með Bláa Flagginu af öllum ströndum Murcia. Fyrir frábæra staðsetningu og fyrirtaks veðurfar, er Mar de Cristal álitin standa fremst í flokki, bæði hvað varðar sumarleyfisdvalarstað og þegar kaupa skal fasteign erlendis, nánar tiltekið í Murcia héraði. Þar er framboð þjónustu mjög gott, með veitingastöðum, verslunum, aðstöðu til íþróttaiðkana og öllu öðru sem nauðsynlegt er þegar fólk kemur sér upp heimili á Spáni.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum