Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares
Þessi eign er ekki í boði
REF 213168
Nýr íbúðakjarni aðeins 250 metra frá ströndinni í Los Alcazares. Bærinn tilheyrir Murcia og býr að fallegum ströndum og allri nauðsynlegri þjónustu. Í boði eru íbúðir á jarðhæð, íbúðir á miðhæð og þakíbúðir með þakverönd og útsýni til hafs. Allar eignirnar hafa 3 svefnherbergi og 2 baðherbergi, opið eldhús og stofu og rúmgóða verönd ásamt stórum gluggum sem veita fallega birtu. Innifalið í verði er fullbúið eldhús, bílastæði og geymsla og íbúðirnar eru klárar fyrir uppsetningu á loftkælingu. Í sameign eru sundlaug, garður og pláss til að leggja reiðhjólum.
Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares
Los Alcázares býr að 9 km strönd við Mar Menor og þar á meðal má finna strendur sem liggja við byggð, eins og Los Narejos og Las Salinas, með löngum strandgöngustíg og góðu úrvali af dægradvöl.
Á svæðinu eru líka verndaðar náttúruperlur eins og playa de La Hita, sem er mikilvægur dvalarstaður farfugla og ein af fáum ósnortnum ströndum Mar Menor. Þökk sé flötu landslagi, er Los Alcázares tilvalinn staður fyrir þá sem hafa gaman af hjólreiðum og öðrum íþróttum eins og golfi, en tveir góðir golfvellir eru á staðnum, La Serena Golf y Roda Golf. Medland Spáni býður uppá fjölbreytt úrval fasteigna í Los Alcázares, allt frá íbúðum til stórra einbýlishúsa en allar eignirnar standa nálægt strönd, golfi og þjónustu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum