Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago
Þessi eign er ekki í boði
REF 2481030
Nýr íbúðakjarni innan við 100 m frá ströndinni í Santiago de la Ribera. Öll nauðsynleg þjónusta er á svæðinu; matvöruverslanir, barir og veitingastaðir, bankar, apótek og ýmsar tómstundir eins og vatnaíþróttir eða golf.
Kjarninn býður upp á íbúðir með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, en velja má um jarðhæð með stórri verönd, eða efri hæð með þakverönd. Allar íbúðirnar hafa opna stofu, borðstofu og eldhús. Hjónaherbergi er með en-suite baðherbergi og opnast út á fremri verönd.
Sameiginlegt svæði hefur stóra sundlaug fyrir fullorðna og börn og fallega garða. Allar íbúðirnar eru klárar fyrir uppsetningu á loftkælingu/hitun, þeim fylgja fataskápar og bílastæði í sameiginlegri bílageymslu.
Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago
San Javier er bær við Costa de Murcia en honum tilheyra 23 km af strönd við Mar Menor og 16 km við Miðjarðarhafið.
Auk bæjarkjarna San Javier, má þarna finna aðra bæi, eins og Santiago de La Ribera og La Manga del Mar Menor. Santiago de la Ribera býr að 4 km strönd þar sem Castillico, Barnuevo og Colón, standa uppúr enda merktar gæðastimpli ferðaþjónustunnar. Þjónusta er almennt góð á svæðinu en nefna má flugvöllinn í Murcia og sportbátaklúbbinn sem býður upp á fjölmargar vatnaíþróttir árið um kring.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum