Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan
Þessi eign er ekki í boði
REF 2509396
Staðsett í bænum San Pedro del Pinatar, við Costa Cálida í Murcia. Bærinn býður uppá gott úrval daglegra þæginda í göngufæri. Glæsilegar strendur Torre de la Horadada eru í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð. Kjörinn staður til að eyða fríi eða fyrir búsetu allt árið um kring.
Húsin eru byggð á 250m2 lóðum, með 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og þakverönd. Opin stofa, borðstofa og eldhús eru í eignunum og þau hafa 3 svefnherbergi og 2 baðherbergi (eitt en-suite). Stofan og svefnherbergin hafa aðgang að verönd og sundlaugarsvæði. Geymslan, sem staðsett er undir stiganum uppá þakveröndina, inniheldur lítið þvottahús.
Velja má um skipulag í húsunum og mögulegt er að bæta við fjórða svefnherberginu og/eða bílskúr. Húsunum fylgir loftkæling/hitun, eldhústæki, innri og ytri LED lýsing, geymsla og þvottahús, einkasundlaug og bílastæði á lóð.
Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan
San Pedro del Pinatar hefur fram að færa 14 km af ströndum sem skiptast milli tveggja hafa; Mar Menor og Miðjarðarhafsins. Sérstök staðsetning bæjarins við ströndina og náttúrulegt umhverfi á svæðinu hafa ýtt undir vinsældir hans og aukið eftirspurn eftir húsnæði.
Auk fallegra stranda, hafnarinnar og góðu framboði þjónustu hefur San Pedro del Pinatar fram að færa einstaka náttúruperlu; þjóðgarðinn Las Salinas y Arenales de San Pedro del Pinatar en garðurinn er votlendi með fjölbreyttu fuglalífi og fallegri plöntuflóru. Bærinn San Pedro del Pinatar, auk sjálfs kjarna bæjarins, er byggður upp af öðrum litlum úthverfum eins og El Mojón, Las Salinas, Los Sáez og Lo Pagán. Hið síðasttalda, Lo Pagán, er hið mikilvægasta vegna mikillar þróunar hvað varðar ferðamennsku. Mikilvægasta ströndin í Lo Pagán er playa de La Puntica, en þar eru falleg lítil hús og spa svæði sem teygir sig út í hafið, auk góðs framboðs af dægradvöl.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum