Costa Cálida, Costa Murcia Sur, Murcia Inland
REF 4672560
Í þessari einstöku byggð er að finna einbýli á einni hæð, með þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum á lóðum sem erum á milli 1000 og 1250m2 að stærð. Í öllum íbúðum er rúmgott og bjart dagrými sem sameinar stofu, borðstofu og eldhús. Stórir gluggar í stofu og svefnherbergjum opnast út á svalir og að sundlauginni. Stærsta svefnherbergið er með sérbaðherbergi og fataskáp. Húsið er umkringt tilkomumiklum garði með gervigrasi, steinum og trjám frá Miðjarðarhafssvæðinu, sem auðveldar viðhald.
Íbúðirnar er hægt að sníða eftir eigin höfði og eru þær allar með loftræstingu um stokk, heimilistækjum í eldhúsi, rafknúnum gluggatjöldum i stofu, innbyggðum skápum, LED-ljósum, garðsvæði, einkasundlaug með útisturtu, sólarrafhlöður á þaki, og bílastæði innan lóðar.
Costa Cálida, Costa Murcia Sur, Murcia Inland
Murcia svæðið, inni í landi, er tilvalið fyrir þá sem vilja hvílast eða stunda íþróttir og njóta fallegrar náttúru og góðrar matargerðar.
Svæðið er eitt stærsta framleiðslusvæði ávaxta, grænmetis og blóma í Evrópu, auk þess sem þekktar vínekrur eru í Jumilla, Bullas og Yecla með tilheyrandi vínbúgörðum og framleiðslu. Náttúran er falleg í Murcia og má þar nefna Sierra Espuña og Ricote dalinn en Murcia er ennfremur rík að listum og menningararfi. Í Murcia er framúrskarandi Miðjarðarhafsloftslag og fasteignamarkaðurinn býður uppá gæðaeignir á mjög góðu verði, aðallega einbýlishús.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum