Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares
Þessi eign er ekki í boði
REF 212265
Ný einbýli við hlið Roda Golf, aðeins 3 km frá ströndinni Los Narejos. Öll þjónusta er í næsta nágrenni, í Los Alcazares. Íbúðahverfi með öllum þægindum og lygnum ströndum Mar Menor.
Í boði eru hús með 2 og 3 svefnherbergjum, á einni hæð, með nýstárlegri og bjartri hönnun. Opið rými er í húsunum, fullbúið eldhús, 2 baðherbergi, annað þeirra ensuite, 80 m2 þakverönd með svæði til afslöppunar, einkabílastæði og fallegir garðar. 3ja svefnherbergja einbýlishús kemur með eigin sundlaug en í húsum með 2 svefnherbergjum er val um sundlaug eður ei. Húsin eru klár fyrir uppsetningu á loftkælingu.
Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares
Los Alcázares býr að 9 km strönd við Mar Menor og þar á meðal má finna strendur sem liggja við byggð, eins og Los Narejos og Las Salinas, með löngum strandgöngustíg og góðu úrvali af dægradvöl.
Á svæðinu eru líka verndaðar náttúruperlur eins og playa de La Hita, sem er mikilvægur dvalarstaður farfugla og ein af fáum ósnortnum ströndum Mar Menor. Þökk sé flötu landslagi, er Los Alcázares tilvalinn staður fyrir þá sem hafa gaman af hjólreiðum og öðrum íþróttum eins og golfi, en tveir góðir golfvellir eru á staðnum, La Serena Golf y Roda Golf. Medland Spáni býður uppá fjölbreytt úrval fasteigna í Los Alcázares, allt frá íbúðum til stórra einbýlishúsa en allar eignirnar standa nálægt strönd, golfi og þjónustu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum