Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares
Þessi eign er ekki í boði
REF 871995
Nýr íbúðakjarni í Los Dolores de Pacheco, litlu svæði sem tilheyrir borginni Murcia og er staðsett aðeins 3 km frá Los Alcázares og Mar Menor. Rólegur staður sem hefur alla nauðsynlega þjónustu frá degi til dags og er vel tengdur við helstu borgir og svæði í nágrenninu; Cartagena, Murcia, Orihuela Costa og Torrevieja.
Boðið er upp á íbúðir á jarðhæð með garði og íbúðir á efri hæð með þakverönd en allar eignir eru með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Íbúðirnar samanstanda að öðru leyti af stofu/borðstofu sem tengist nútíma eldhúsi en úr stofunni er aðgangur að veröndinni, með útsýni yfir sameiginlegt sundlaugarsvæði. Auk þess eru bílastæði innan kjarnans. Íbúðirnar eru útbúnar fyrir uppsetningu á loftkælingu/hitun í stokkum.
Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares
Los Alcázares býr að 9 km strönd við Mar Menor og þar á meðal má finna strendur sem liggja við byggð, eins og Los Narejos og Las Salinas, með löngum strandgöngustíg og góðu úrvali af dægradvöl.
Á svæðinu eru líka verndaðar náttúruperlur eins og playa de La Hita, sem er mikilvægur dvalarstaður farfugla og ein af fáum ósnortnum ströndum Mar Menor. Þökk sé flötu landslagi, er Los Alcázares tilvalinn staður fyrir þá sem hafa gaman af hjólreiðum og öðrum íþróttum eins og golfi, en tveir góðir golfvellir eru á staðnum, La Serena Golf y Roda Golf. Medland Spáni býður uppá fjölbreytt úrval fasteigna í Los Alcázares, allt frá íbúðum til stórra einbýlishúsa en allar eignirnar standa nálægt strönd, golfi og þjónustu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum