Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan
Þessi eign er ekki í boði
REF 232704
Kjarni af raðhúsum í íbúðarhverfi Lo Pagán, í San Pedro del Pinatar, þar sem öll nauðsynleg þjónusta er í boði. Bærinn liggur við Mar Menor og frá kjarnanum eru einungis 700 metra að ströndinni. Í boði eru hús með 2 eða 3 svefnherbergjum, byggð á einni hæð með þakverönd. Alrýmið er rúmgott og opið, hjónaherbergi með ensuite baðherbergi en þaðan má ganga út í garðinn. Þökk sé háum veggjum má njóta góðs næðis í garðinum. Húsin eru afhent með eldhústækjum og fullbúnum baðherbergjum.
Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan
San Pedro del Pinatar hefur fram að færa 14 km af ströndum sem skiptast milli tveggja hafa; Mar Menor og Miðjarðarhafsins. Sérstök staðsetning bæjarins við ströndina og náttúrulegt umhverfi á svæðinu hafa ýtt undir vinsældir hans og aukið eftirspurn eftir húsnæði.
Auk fallegra stranda, hafnarinnar og góðu framboði þjónustu hefur San Pedro del Pinatar fram að færa einstaka náttúruperlu; þjóðgarðinn Las Salinas y Arenales de San Pedro del Pinatar en garðurinn er votlendi með fjölbreyttu fuglalífi og fallegri plöntuflóru. Bærinn San Pedro del Pinatar, auk sjálfs kjarna bæjarins, er byggður upp af öðrum litlum úthverfum eins og El Mojón, Las Salinas, Los Sáez og Lo Pagán. Hið síðasttalda, Lo Pagán, er hið mikilvægasta vegna mikillar þróunar hvað varðar ferðamennsku. Mikilvægasta ströndin í Lo Pagán er playa de La Puntica, en þar eru falleg lítil hús og spa svæði sem teygir sig út í hafið, auk góðs framboðs af dægradvöl.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum