Costa Cálida, Mar Menor, Torre Pacheco
REF 4734305
Í kjarnanum eru einbýli á einni hæð með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum auk sólstofu. Eldhúsið, stofan og borðstofan eru í opnu rými sem opnast út á verönd og sundlaugarsvæðið. Útistigi frá garðinum leiðir til 84m2 sólstofu þar sem kjörið er að njóta Miðjarðarhafs lífstílsins til fyllstu. Húsin eru vel búin og eru hjónasvíturnar með baðherbergi inn af. Þá er eitt húsanna á tveimur hæðum, með 2 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum.
Húsin eru öll með loftkælingu, heimilistækjum, full búnu baðherbergi, innbyggðum fataskápum, einkasundlaug og bílastæði. Með tilliti til verðs, fylgifés og staðsetningu er auðvelt að fullyrða að þessi hús eru kjörin bæði sem sumarhús og heimili.
Costa Cálida, Mar Menor, Torre Pacheco
Torre Pacheco tilheyrir Murcia og liggur skammt frá bænum Los Alcázares við Mar Menor. Svæðið er þekkt fyrir áberandi vindmyllur og úrval golfvalla en bærinn sjálfur býður upp á gott úrval af daglegri þjónustu, börum og veitingastöðum ásamt heilsugæslu og tveimur skólum og er þannig kjörinn kostur fyrir búsetu allt árið um kring.
Þótt um sé að ræða svæði inni í landi eru strendur Mar Menor í aðeins 15 mínútna akstursfjarlægð, þar sem margar vatnaíþróttir eru í boði, svo sem köfun, snorkl og siglingar. Medland býður uppá fjölbreytt úrval fasteigna í Torre Pacheco, allt frá íbúðum til einbýlishúsa, sem staðsettar eru nálægt daglegri þjónustu, ýmsum golfvöllum og í stuttri akstursfjarlægð frá ströndinni.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum