Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Benahavís
Þessi eign er ekki í boði
REF 4805962
Kjarni með íbúðum sem eru tilbúnar í Benahavís. Svæðið er þekkt sem Gullni þríhyrningur Costa del Sol vegna fjölda 5* hótela og fyrsta flokks golfvalla. Svæðið er í miðju Benahavís, Marbella og Estepona og er kjarninn staðsettur í eingöngu 15 mínútna fjarlægð frá fallegum ströndum og nálægt allri helstu þjónustu, s.s. matvöruverslanir, íþróttavellir og heilsugæsla, þá er mikið úrval almennra verslana og tómstunda á svæðinu auk veitingastaða. Benahavís býður upp á mikið úrval af alls kyns útivistar tækifærum, s.s. gönguleiðir, hestaferðir og fjallahjólastíga. Svæðið er vel tengt vegakerfinu og er einfalt og fljótlegt að aka til helstu staða Costa del Sol. Það tekur t.d. einungis 30 mínútur að aka til Marbella, 20 mínútur að aka til Puerto Banús og Estapona á 25 mínútum. Alþjóðaflugvöllurinn í Malaga er í klukkustundar fjarlægð.
Kjarninn býður upp á frábært sjávarútsýni og samanstendur af íbúðum sem eru annað hvort með 2 eða 3 svefnherbergjum á 3 hæðum. Allar íbúðirnar eru með stórar svalir og hafa verið hannaðar þannig að rýmin nýtast vel og eru björt. Íbúðirnar eru opnar og er eldhús, stofa og borðstofa í einu opnu rými sem opnast út á verönd þar sem æðislegt sjávarútsýnið blasir við. Hjónasvíta allra íbúðanna er með baðherbergi inn af með tvöföldum vaski og er beint aðgengi út á verönd úr þeim.
Íbúðunum fylgir fullbúið eldhús með öllum eldhústækjum, geymsla og bílastæði.
Kjarninn er með aðgangsstýringu við inganginn og býður upp á fjölda svæði í sameign þar sem hægt er að njóta útsýnis yfir Miðjarðarhafið og yfir til Gíbraltar. Sameignarsvæðið inniheldur m.a. fjórar sundlaugar, þar af er ein hituð “infinity” laug, fullbúna líkamsrækt og stórt grænt svæði með sólbekkjum og sólhlífum. Þá er brytaþjónusta í kjarnanum sem aðstoðar íbúa við ýmsa hluti, s.s. viðhald íbúðanna, allan rekstur íbúðanna og útleiguþjónustu fyrir íbúðirnar ef þess er óskað, borðapantanir á veitingastöðum og fleira.
Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Benahavís
Benahavís er fjallaþorp í Málaga héraði, staðsett 7 km frá ströndinni. Bærinn liggur milli Marbella, Estepona og Ronda, við vestur Costa del Sol og er vinsæll sökum úrvals veitingastaða og fyrir það að vera hvítt þorp með dæmigerðu arabísku skipulagi.
Benahavís stendur 150 m yfir sjávarmáli. Loftslagið er Miðjarðarhafsloftslag, með meðalhita á ári um 17º C. Íbúafjöldi er um 7.700 en meira en helmingur íbúa eru erlendir ríkisborgarar.
Þorpið tengir einkenni hefðbundinna hvítra þorpa í Málaga héraði við nútímann og gæði innviða í ferðamannaþjónustu. Þar eru samankomnir tugir golfvalla og fjölbreytt aðstaða til ævintýraíþrótta í fallegu náttúrulegu umhverfi þar sem finna má fjölbreytt úrval veitingastaða.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum