Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Mijas, Mijas Costa
REF 4021327
Nútíma einbýlishús staðsett á La Cala Golf Resort, golfvelli í Sierra de Mijas fjöllunum, og aðeins 10 mínútur frá stórkostlegum ströndum Costa del Sol. Svæðið liggur á milli Cala de Mijas og Fuengirola, með frábæru vegakerfi sem tengir það við borgirnar Marbella og Málaga, í 20 og 30 mínútna fjarlægð.
Kjarninn býður upp á einstök tveggja hæða einbýlishús með 3 svefnherbergjum og 4 baðherbergjum, kjallarahæð og stórkostlegri þakverönd, samtals meira en 300 m2 að stærð. Aðalhæðin er með opinni hönnun sem sameinar setustofu, borðstofu og eldhús. Það fer eftir gerð, hvort glerhurðar í stofu opnast út á stóra verönd eða út á sundlaugarsvæðið. Einnig má finna hjónaherbergi, baðherbergi og gestasalerni á þessari hæð. Aðal hjónaherbergið er á efri hæð og hefur verið hannað sem svíta, með stóru fataherbergi og glæsilegu baðherbergi. Annað hjónaherbergi með en-suite baðherbergi má finna á þessari hæð líka. Rúmgóð þakverönd býður upp á fallegt útsýni yfir nærliggjandi svæði. Kjallarinn skiptist í nokkur rými, stórt opið svæði og annað gestasalerni. Gegn aukakostnaði má sérsníða kjallarann og önnur svæði hússins.
Húsin eru afhent með eldhústækjum, gólfhita, loftkælingu, einföldu snjallkerfi, bílastæði og einkasundlaug.Aukalega er möguleiki á að bæta við lyftu í húsin.
Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Mijas, Mijas Costa
La Cala, heitir þéttbýli Mijas sem liggur við ströndina. La Cala er hefðbundið þorp sem í dag er miðpunktur 12 km langrar strandlengju. Við strendurnar eru glæsileg íbúðahverfi, hótel og fjöldinn allur af annars konar þjónustu. Á svæðinu má spila golf og tennis og stunda alls kyns vatnaíþróttir, svo sem köfun eða siglingar. Þá má auðvitað baða sig í sjónum eða liggja og sleikja sólina.
Úr fortíð svæðisins standa eftir fjórir turnar sem voru hluti af varnarvirki andalúsísku strandlengjunnar. Þá hefur hafsbotninn við Mijas mikla vistfræðilega þýðingu en þar er mikil fjölbreytni í dýralífinu og fjöldi evrópskra, afríkanskra, Atlantshafs- og Miðjarðarhafstegunda lifa þar saman í sátt og samlyndi.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum