Costa Blanca Norður, Marina Alta, Calpe
Þessi eign er ekki í boði
REF 1733820
Íbúðakjarni í miðbæ Calpe og aðeins 150 metra frá ströndinni. Tilvalið fyrir þá sem vilja vera nálægt allri þjónustu og án þess að þurfa að nota bíl.
Calpe er einn af helstu ferðamannastöðum Costa Blanca, og íbúðirnar gott tækifæri til fjárfestingar að auki.
Íbúðir með 1, 2 eða 3 svefnherbergjum, björtum og rúmgóðum veröndum og jarðhæðaríbúðir með garði. Allar eignir snúa að hafinu. Tvö sameiginleg svæði eru í kjarnanum, garðar og sundlaug og síðan sameiginleg þakverönd með fallegu sjávarútsýni og svæði til afslöppunar með stórum Jacuzzi potti. Festa má kaup á bílastæði og geymslu í kjallara.
Costa Blanca Norður, Marina Alta, Calpe
Calpe er, ásamt Denia, ein af megin borgunum á Norður Costa Blanca. Eitt af einkennum Calpe og táknrænt fyrir Costa Blanca er Peñón de Ifach, klettur sem teygir sig 332 m. upp til himins af ströndinni. Peñón de Ifach er heimili ýmissa fuglategunda og hefur verið þjóðgarður frá 1987.
Calpe er alsett gæðalegum ströndum og víkum sem þúsundir gesta hafa notið á síðustu árum. Ferðaiðnaðurinn hefur breytt þessari hafnarborg í eina af meginkjörnum búsetuferðaþjónustunnar á Costa Blanca. Það má sannreyna á ótrúlegu úrvali þjónustu og fasteigna við sjávarsíðuna. Fasteignakaupandinn hefur úr mörgu að velja, allt frá íbúðum að einstökum einbýlum. Skoðið fasteignirnar á Norður Costa Blanca
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum