Costa Blanca Norður, Marina Alta, Denia
Þessi eign er ekki í boði
REF 3080462
Einbýlishús í Denia, nyrstu borg Costa Blanca. Staðsett nálægt miðbænum, þar sem allar daglegar nauðsynjar eru í boði, og stutt er að aka að ströndinni. Denia er mikilvæg hafnarborg við Costa Blanca og tengir spænska meginlandið við eyjarnar Ibiza og Mallorca. Borgin er staðsett milli flugvallanna í Alicante og Valencia.
Tveggja hæða einbýlishús, með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum, byggð á lóðum á bilinu 220m2-323m2. Jarðhæðin er björt og rúmgóð með opinni stofu, borðstofu og eldhúsi en alrýmið opnast út á yfirbyggða verönd og garð. Baðherbergi og þvottahús má einnig finna á jarðhæð. Öll 3 svefnherbergin eru á efri hæðinni auk 2ja baðherbergja (1 en-suite). Stór garður fylgir hverri eign, með malbikaðri innkeyrslu fyrir allt að tvo bíla og plássi fyrir sundlaug sem biðja má um gegn aukakostnaði.
Húsin eru afhent tilbúin til uppsetningar á loftkælingu/hitun og bílastæði er á lóðinni.
Costa Blanca Norður, Marina Alta, Denia
Borgin Denia er við norður Costa Blanca og er einn af helstu áfangastöðum ferðalanga við spænsku Miðjarðarhafsströndina. Þar er að finna ótrúlegt framboð á þjónustu og höfn þar sem mikið er um að vera, sérstaklega á sumrin, þökk sé tengingu við vinsælu eyjuna Ibiza.
Í Denia er 20 km. strönd sem skiptist í tvennt. Til norðurs má finna breiðar sandstrendur eins og Almadraba eða Les Deveses. Til suðurs einkenna Les Rotes fjöldi víka, sem flestar eru settar steinum, og göngustígar. Frá því á sjöunda áratugnum hefur Denia verið einn vinsælasti kostur kaupenda og fjárfesta sem kjósa að búa við ströndina og því er fasteignaframboðið mikið, sérstaklega á íbúðum við ströndina. Skoðið fasteignirnar við ströndina í Denia
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum