Costa Blanca Norður, Marina Baja, Altea
Þessi eign er ekki í boði
REF 4171
Íbúðakjarni í einni af frægustu fimm stjörnu íbúðabyggðinni á Costa Blanca: Altea Hills. Ótrúleg staðsetning með stórbrotnu Miðjarðarhafsskóglendi og glæsilegu útsýni yfir hafið. Einstakt umhverfi þæginda og lífsgæða. Eigin golfvöllur er í hverfinu og stutt er að Altea höfninni. Hverfið er byggt upp af 38 lúxus íbúðum frá 158 til 500 m2 að stærð og er hluti af enduruppbyggingu. Nútímaleg hönnun og fyrirtaks frágangur.
Costa Blanca Norður, Marina Baja, Altea
Altea er af mörgum talin fegursta borgin á Costa Blanca.
Gamli miðbærinn með sínum þröngu og bröttu götum, hvítu húsum og sinni víðfrægu bláu kirkjuhvelfingu, gefa staðnum töfrum gætt yfirbragð og sjarma. Bóhemískt andrúmsloftið í Altea hefur dregið að listamenn sem leita eftir fegurð og einstakri birtu við Miðjarðarhafið. Við sjávarröndina í neðri hluta bæjarins er strandgata, höfnin og siglingaklúbbur. Á þessu svæði er að finna úrval nýbygginga, sér í lagi íbúðir mjög nálægt ströndinni. Í 5 km. fjarlægð frá miðbænum er Altea Hills, lúxus íbúðasvæði þar sem finna má fimm stjörnu hótel og golfvöll. Hér er að finna einstakt úrval fasteigna, með áherslu á lúxusíbúðir og einbýli. Skoðið fasteignirnar á ströndinni við Altea.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum