Costa Blanca Norður, Marina Baja, Polop-La Nucía
Þessi eign er ekki í boði
REF 3042623
Ný raðhús í Polop, fallegu þorpi sem umkringt er fjöllum, aðeins 15 mínútur frá borginni Benidorm og vel tengt A-7 hraðbrautinni. Tilvalinn staður til búsetu allt árið um kring þar sem njóta má friðsældar með alla nauðsynlega þjónustu innan seilingar. Húsin eru á tveimur hæðum og velja má milli 2ja svefnherbergja á efri hæð eða bæta við þriðja svefnherberginu á jarðhæð og minnka þannig stofuna, án aukakostnaðar. Öll húsin eru með opinni hönnun og nútíma eldhúsi, 3 baðherbergjum og veröndum. Þakverönd er á húsunum, bílastæði á lóð og í garðinum má koma fyrir einkasundlaug ef vill. Sameiginleg sundlaug og garður eru í kjarnanum.
Costa Blanca Norður, Marina Baja, Polop-La Nucía
Polop er lítið þorp í Alicante-héraði í um 20 mín. fjarlægð frá stöndinni og Benidorm.
Fyrir þá sem leita að fasteign á Costa Blanca, á rólegum stað og í náttúrulegu umhverfi, en um leið stutt frá allri þjónustu, er Polop fullkominn kostur. Hér má sjá fasteignir í Polop:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum