Costa Blanca Suður, Bajo Vinalopó, Elche, Arenales del Sol
Þessi eign er ekki í boði
REF 124329
Glæsileg nýbygging við ströndina í Arenales del Sol. Aðeins 100 metra frá ströndinni sjálfri, sem telst til fyrstu línu þar sem fyrir framan er grænt svæði sem kemur í veg fyrir framkvæmdir og tryggir útsýni yfir hafið frá öllum íbúðunum.
Í boði eru 2ja og 3ja svefnherbergja íbúðir; á jarðhæð með eigin garði, millihæð með stórri verönd eða frábærar þakíbúðir með þakverönd. Íbúðirnar njóta eins og fyrr segir, fallegs útsýnis yfir hafið. Eignirnar eru klárar fyrir uppsetningu á loftkælingu og gólfhiti er á baðherbergjum.
Í kjarnanum er stórt sameiginlegt svæði með 4 sundlaugum, einni sem ætluð er fullorðnum og annarri sem ætluð er börnum, einni upphitaðri sundlaug og þeirri fjórðu sem kallast útsýnislaugin og er í laginu eins og bátur. Þaðan má njóta frábærs útsýnis. Tveir heitir pottar eru ennfremur í sameign, svæði til afslöppunar, leiksvæði fyrir börnin, líkamsræktaraðstaða með sauna, tyrknesku baði og búningsklefum. Tvö íþróttasvæði eru einnig í kjarnanum með tennisvelli, paddle tennisvelli og fjölnota velli. Tveir bílakjallarar fylgja eignunum en þar eru geymslur að auki.
Costa Blanca Suður, Bajo Vinalopó, Elche, Arenales del Sol
Íbúðabyggðin við Arenales del Sol og aðliggjandi strönd hefur til margra ára verið eftirsóttur áfangastaður spænskra ferðalanga.
Ströndin við Arenales del Sol er um einn og hálfur km. að lengd, og því ein af þeim lengri við Costa Blanca. Við sjóinn rísa háar byggingar með stórkostlegu útsýni sem umkringdar eru margskonar þjónustu. Stór hluti fasteignaúrvalsins í Arenales del Sol samanstendur af tveggja og þriggja svefnherbergja íbúðum í innan við 300 m. fjarlægð frá ströndinni. Þessar fasteignir eru mjög eftirsóttar af þeim sem kjósa að njóta frítímans við ströndina. Skoðið fasteignaframboðið við ströndina í Arenales del Sol.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum