Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Algorfa, La Finca
Þessi eign er ekki í boði
REF 4827
Nýtískulegar íbúðir í yndislegu hverfi við La Finca golfvöllinn í Suður Costa Blanca. Aðeins 10 mínútna akstur er til strandanna í Guardamar og við golfvöllinn er 5 stjörnu hótel, félagsklúbbur, svæði til íþróttaiðkana, veitingastaðir og fleira. Aðeins 2 km eru niður í þorpið Algorfa.
Íbúðirnar eru í tveggja hæða byggingum. Íbúðir á jarðhæð hafa eigin garð en íbúðir á efri hæð hafa eigin þakverönd með útsýni yfir golfvöllinn. Nútímaleg hönnun bæði að innan sem utan með opnu og björtu rými. Í sameign eru garðar, sundlaug og bílastæði.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Algorfa, La Finca
La Finca er afmörkuð íbúabyggð sem teygir sig utan um samnefndan golfvöll, La Finca Golf. Hér er að finna fyrsta flokks þjónustu eins og fimm stjörnu hótel, stórt klúbbhús, golfskóla, íþróttavöll og verslanasvæði með veitingastöðum og annarri þjónustu.
Fasteignirnar við La Finca Golf eiga sameiginlegt rólegt umhverfið og fallegt útsýni yfir dalinn. Í aðeins um 2 km. fjarlægð frá miðbæ Algorfa og allri nauðsynlegri þjónustu, og í 15 mín. fjarlægð frá ströndum Guardamar. Fullkominn staður fyrir þá sem leita eftir fasteign í nálægð við ströndina, langt frá skarkala en þó stutt í allt. Hér má sjá fasteignaframboðið við La Finca Golf.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum