Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Benijófar
Þessi eign er ekki í boði
REF 1923903
Nýr kjarni fjögurra einbýlishúsa í bænum Benijófar, nálægt Ciudad Quesada. La Marquesa og La Finca Golf, Lagunas de La Mata þjóðgarðurinn og strendur Guardamar og Torrevieja eru í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð frá bænum. Húsin eru í spænskum bæ, með öllum nauðsynlegum þægindum í nágrenninu. Tilvalin staðsetning fyrir þá sem leita að friðsælu umhverfi, umkringdu náttúru, en þægilega nálægt stærri borgum og bæjum. Góð tenging er við AP-7 hraðbrautina sem tengir svæðið við helstu borgir eins og Murcia, Elche og Alicante. Flugvöllurinn í Alicante flugvellinum, er í 25 mínútna akstursfjarlægð.
Um er að ræða tveggja hæða einbýlishús, á lóðum yfir 200m2 að stærð, með 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og gestasalerni. Opin stofa, eldhús og borðstofa eru á jarðhæð, ásamt hjónaherbergi með fataherbergi og sér baðherbergi. Svefnherbergin tvö á efri hæð hússins, deila baðherbergi en úr öðru herberginu má ganga út á 32m2 verönd. Nútímaleg og hagkvæm hönnun, blanda af hvítum lit og hlýju viðarútliti. Hverju húsi fylgir bílastæði og möguleika á að byggja einkasundlaug.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Benijófar
Fasteignaúrvalið í Benijófar er mjög fjölbreytt, nægir þar að nefna úrval einbýla og raðhúsa. Falleg hönnun á einbýlum og fyrsta flokks gæði á samkeppnishæfu verði. Skoðið fasteignaframboðið í Benijófar
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum