Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Benijófar
Þessi eign er ekki í boði
REF 1945560
Nýr kjarni einbýlishúsa í Benijófar, notalegum spænskum bæ sem staðsettur er nálægt Ciudad Quesada. Öll nauðsynleg dagleg þjónusta er í nágrenninu, og frábærar strendur Guardamar og Torrevieja eru aðeins í 10 mínútna akstursfjarlægð.
Húsin eru á tveimur hæðum með þakverönd, 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og gestasalerni. Rúmgóð stofa og borðstofa tengjast eldhúsi í amerískum stíl. Stórir gluggar eru í stofu og útaf eldhúsi sem veita birtu í húsið og aðgang að flísalagðri veröndinni þar sem koma má fyrir sundlaug. Á efri hæð eru tvö svefnherbergi, baðherbergi, og aðgangur að 12m2 verönd, þaðan sem ganga má upp á þakveröndina. Útsýnið á þakinu er yfir appelsínu- og sítrónuakra og fjöllin í fjarska.
Húsinu fylgir loftkæling/hitun, innanhúss og utanhúss lýsing og bílastæði á lóð.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Benijófar
Fasteignaúrvalið í Benijófar er mjög fjölbreytt, nægir þar að nefna úrval einbýla og raðhúsa. Falleg hönnun á einbýlum og fyrsta flokks gæði á samkeppnishæfu verði. Skoðið fasteignaframboðið í Benijófar
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum