Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Benijófar
Þessi eign er ekki í boði
REF 3799849
Nýr kjarni einbýlishúsa í Benijófar, vinsælum bæ við suður Costa Blanca, milli bæjanna Guardamar og Torrevieja. Allar daglegar nauðsynjar eru í göngufæri, auk fullkomnara úrvals á nágrannasvæðunum Rojales og Ciudad Quesada. Tveir stórir golfvellir eru í innan við 10 mínútna akstursfjarlægð og strendur Guardamar í aðeins 15 mínútna akstursfjarlægð.
Nútímaleg einbýlishús á tveimur hæðum með 3 svefnherbergjum, 3 baðherbergjum og þakverönd, með einstöku útsýni yfir nærliggjandi fjöll og appelsínu- og sítrónuakra. Rúmgóð setustofa, borðstofa og nútímalegt eldhús eru í húsunum og alrýmið opnast út á verönd og garðsvæði með einkasundlaug. Hjónaherbergi er á jarðhæð og 2 svefnherbergi á efri hæð. Hjónaherbergið er með sér baðherbergi, fataherbergi og verönd.
Húsunum fylgir loftkæling, gólfhiti á baðherbergjum, eldhústæki, rafmagnsgluggahlerar, einkasundlaug og bílastæði á lóð.Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Benijófar
Fasteignaúrvalið í Benijófar er mjög fjölbreytt, nægir þar að nefna úrval einbýla og raðhúsa. Falleg hönnun á einbýlum og fyrsta flokks gæði á samkeppnishæfu verði. Skoðið fasteignaframboðið í Benijófar
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum