Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Þessi eign er ekki í boði
REF 135318
Einbýlishús á svæði nálægt hinni vinsælu Ciudad Quesada og Doña Pepa hverfinu, í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð frá frábærum ströndum Guardamar. Quesada er stórt hverfi, staðsett milli Torrevieja og Guardamar, með frábæru úrvali alls kyns þjónustu og dægradvalar; skólar, bankar, verslanir, golfvöllur, hótel og vatnagarður svo eitthvað sé nefnt... í stuttu máli, allt sem þarf til að gera lífið auðvelt og skemmtilegt fyrir íbúana.
Húsin eru byggð á lóðum frá 156-238 m2 og eru öll á tveimur hæðum með þremur svefnherbergjum og, eftir tegund húss, annað hvort 3 baðherbergjum eða 2 baðherbergjum og gestasalerni. Hverri eign fylgir gólfhiti á baðherbergjum, nuddbaðkar í baðherbergi útaf hjónaherbergi og fullfrágenginn garður.
Kynningartilboð er á eignunum: Einkasundlaug er innifalin í verði.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Ciudad Quesada er vinsæl íbúðabyggð við suður Costa Blanca í um 8 km. fjarlægð frá ströndunum í Guardamar og ýmisskonar þjónustu. Hverfið býr yfir eigin golfvelli, La Marquesa Golf, vatnsleikjagarði, hótelum og miklum fjölda verslana og tómstunda.
Einbýli og raðhús eru lang stærsti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er þar að finna úrval íbúða. Framboðið er afar heillandi vegna gæða á góðu verði, nokkuð sem þúsundir íbúa sem valið hafa að búa í Quesada þekkja vel. Skoðið fastegnaframboðið í Quesada
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum