Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Þessi eign er ekki í boði
REF 257289
Ný raðhús í íbúðahverfi Ciudad Quesada sem er vinsæll staður með miklu framboði af þjónustu, fjölbreyttum verslunum, vatnagarði og golfvelli. Aðeins 10 mínútur tekur að aka að ströndum Guardamar og Torrevieja. Eignirnar sameina glæsilegan Miðjarðarhafsstíl og nútímalegar og hagnýtar innréttingar. Allar eignirnar samanstanda af 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, opinni stofu, nútíma eldhúsi, verönd, eigin garði og þakverönd. Sameiginleg sundlaug og garður er í kjarnanum.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Ciudad Quesada er vinsæl íbúðabyggð við suður Costa Blanca í um 8 km. fjarlægð frá ströndunum í Guardamar og ýmisskonar þjónustu. Hverfið býr yfir eigin golfvelli, La Marquesa Golf, vatnsleikjagarði, hótelum og miklum fjölda verslana og tómstunda.
Einbýli og raðhús eru lang stærsti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er þar að finna úrval íbúða. Framboðið er afar heillandi vegna gæða á góðu verði, nokkuð sem þúsundir íbúa sem valið hafa að búa í Quesada þekkja vel. Skoðið fastegnaframboðið í Quesada
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum