Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Þessi eign er ekki í boði
REF 3079539
Einbýlishús í Rojales, heillandi spænskum bæ, við suður Costa Blanca. Nálægt öllum daglegum þægindum, sem og La Marquesa golfvellinum og hinu vinsæla hverfi Ciudad Quesada, þar sem sækja má ýmsa afþreyingu og veitingastaði. Stórkostlegar strendur Guardamar eru í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð.
Húsin eru á einni hæð, með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, auk 115m2 kjallara. Opin stofa, borðstofa og fullbúið eldhúsið eru í húsunum en úr alrými má ganga út á rúmgóða verönd, garð og sundlaug. Svefnherbergin eru með fataskápum og hjónaherbergi er búið sér baðherbergi. Kjallarinn er afhentur óunninn en hann má aðlaga eftir þörfum, gegn aukagjaldi. Að auki má bæta við þakverönd. Fáðu tilboð!
Eignirnar eru afhentar með loftkælingu/hitun, inni- og útilýsingu, einkasundlaug, fullbúnum garði og bílastæði á lóð.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Ciudad Quesada er vinsæl íbúðabyggð við suður Costa Blanca í um 8 km. fjarlægð frá ströndunum í Guardamar og ýmisskonar þjónustu. Hverfið býr yfir eigin golfvelli, La Marquesa Golf, vatnsleikjagarði, hótelum og miklum fjölda verslana og tómstunda.
Einbýli og raðhús eru lang stærsti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er þar að finna úrval íbúða. Framboðið er afar heillandi vegna gæða á góðu verði, nokkuð sem þúsundir íbúa sem valið hafa að búa í Quesada þekkja vel. Skoðið fastegnaframboðið í Quesada
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum