Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Þessi eign er ekki í boði
REF 3754655
Síðustu íbúðir, tilbúnar til afhendingar í frábærum kjarna í Doña Pepa, vinsælu svæði í Ciudad Quesada. Öll dagleg þægindi eru nálægt kjarnanum, svo sem matvöruverslanir, barir og veitingastaðir, ásamt íþróttamannvirkjum og ýmsum tómstundum. Hin vinsæla Guardamar strönd er í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð og velja má um fimm golfvelli innan 10 km radíusar.
Kjarninn er byggður í Miðjarðarhafsstíl og býður upp á íbúðir með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, af tveimur gerðum; horníbúð á jarðhæð með sér garði, eða efstu hæðar íbúðir með þakverönd. Allar íbúðirnar eru með bjartri og rúmgóðri setustofu, borðstofu og eldhúsi sem opnast út á verönd. Hjónaherbergi eru með en-suite baðherbergi og hverri eign fylgir sér bílastæði.
Útsýni er yfir sameign með garði og stórri sundlaug.Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Ciudad Quesada er vinsæl íbúðabyggð við suður Costa Blanca í um 8 km. fjarlægð frá ströndunum í Guardamar og ýmisskonar þjónustu. Hverfið býr yfir eigin golfvelli, La Marquesa Golf, vatnsleikjagarði, hótelum og miklum fjölda verslana og tómstunda.
Einbýli og raðhús eru lang stærsti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er þar að finna úrval íbúða. Framboðið er afar heillandi vegna gæða á góðu verði, nokkuð sem þúsundir íbúa sem valið hafa að búa í Quesada þekkja vel. Skoðið fastegnaframboðið í Quesada
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum