Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Þessi eign er ekki í boði
REF 3760963
Nýr kjarni með lúxus einbýlishúsum á frábærum stað í Ciudad Quesada, við suður Costa Blanca. Svæðið er vel rótgróið og þar er gott úrval af þjónustu, svo sem matvöruverslanir, barir og veitingastaðir, sem opnir eru allt árið um kring. Margt er í boði á svæðinu, eins og vatnagarður, íþróttamiðstöð og fjórir golfvellir innan 10 km radíusar. Guardamar og fallegar sandstrendur eru í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð.
Lúxus einbýlishús á tveimur hæðum, af tveimur gerðum, byggð á 500m2 lóðum. Velja má milli einbýlishúss með 4 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum eða einbýlishúss með 3 svefnherbergjum, 3 baðherbergjum og kjallara. Báðar gerðir eigna hafa rúmgóða opna setustofu, með tvöfaldri lofthæð, borðkrók og eldhúsi en alrýmið opnast út á glæsilega yfirbyggða verönd og sundlaugarsvæði. Hjónaherbergin eru með sér baðherbergi og fataherbergi. Verönd á efri hæð býður upp á einstakt útsýni yfir saltvötnin og Miðjarðarhafið. Einbýlishús með kjallara hefur baðherbergi, þvottahús og veituherbergi, ásamt bílskúr og fjölnota svæði sem hanna má eftir þörfum gegn aukakostnaði.
Gæðafrágangur er á húsunum og þeim fylgir foruppsetning fyrir loftkælingu, þvottahús, geymsla, fullkláraður garður með grillsvæði, útsýnislaug (infinity) með foruppsetningu fyrir varmadælu og bílskúr.Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Ciudad Quesada er vinsæl íbúðabyggð við suður Costa Blanca í um 8 km. fjarlægð frá ströndunum í Guardamar og ýmisskonar þjónustu. Hverfið býr yfir eigin golfvelli, La Marquesa Golf, vatnsleikjagarði, hótelum og miklum fjölda verslana og tómstunda.
Einbýli og raðhús eru lang stærsti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er þar að finna úrval íbúða. Framboðið er afar heillandi vegna gæða á góðu verði, nokkuð sem þúsundir íbúa sem valið hafa að búa í Quesada þekkja vel. Skoðið fastegnaframboðið í Quesada
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum